Ummæli um Bubba dauð og ómerk og honum dæmdar 700 þúsund krónur í bætur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt ummæli, sem höfð voru um Bubba Morthens í blaðinu Hér og nú dauð og ómerk. Þá er fyrrverandi ritstjóri blaðsins dæmdur til að greiða Bubba 700 þúsund krónur í bætur auk 500 þúsund króna í málskostnað. Segir dómurinn, að Bubbi hafi orðið að þola ólögmæta meingerð gegn friði sínum og æru og séu miskabætur ákvarðaðar með hliðsjón af atvikum, einkum því að myndirnar og meiðyrðin hafi náð mikilli útbreiðslu.

http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1193022

Mátulegt á Eirik og þetta blað.