Þetta er enn einn lygaáróðurinn frá hendi Ísraela og stuðningsmanna þeirra. Árásir Ísraela hafa alveg jafn mikið beinst gegn saklausu fólki eins og árásir Palestínumanna. Þeir kokka síðan upp sögur um aðild sinna fórnarlamba að hyðjuverkasamtökum til að réttlælta gerðir sínar.
Nei, þetta er ekki lygaáróður, Palestínumennirnir ljúga þvílíkt mikið um hvað gerist, þeir eru þekktir fyrir sinn áróður, hefur þú ekki séð Pallywood? Þeir segja líka að Ísraelar drepa miskunnarlaust krakka og unga menn sem kasta grjótum, en það er oftast ekki satt. Það eru oft byssumenn í hópnum og skýla sér bakvið krakkana og skjóta á Ísraelana, er það ekki nema von að þessir óbreyttu borgarar verða fyrir skotum Ísraelsmanna. Hér eru nokkrar myndir:
http://img128.exs.cx/img128/8030/terrorchildren2.jpghttp://img128.exs.cx/img128/1764/terrorcivilians5.jpghttp://img128.exs.cx/img128/2420/terrorcivilians6.jpghttp://img128.exs.cx/img128/6695/terrorcivilians4.jpgEftir aðgerðir Ísraelshers í Jenín árið 2002 lugu Palestínumenn því að Ísraelar hafi slátrað 500 manns og alþjóðlegir fjölmiðlar trúðu þeim og sendu út þessar lygar. Eftir að alþjóðlegir eftirlitsmenn rannsökuðu svæðið kom í ljós að aðeins 56 höfðu fallið, þar af 26 uppreisnarmenn. Ég get nefnt mörg dæmi um lygar Palestínumanna og öfgasamtaka á borð við International Solidarity Movement og Ísland-Palestína, en ég nenni ekki að vera að fletta því upp. Ég tala mjög oft við Ísraelska hermenn á netinu og heyri mjög margar sögur af fávitaskap ISM og erlendra fréttamanna á hernumdu svæðunum. Einn hermaður varð vitni að því þegar að erlendur fréttamaður borgaði ungum Palestínumanni fyrir að ergja Ísraelskan hermann við varðstöð, fréttamaðurinn vildi nefnilega fá góðar myndir af hermanni að beita “saklausum” Palestínumanni ofbeldi.
Íslenskir fréttamiðlar eru líka mjög hlutrægir og styðja Palestínumenn, þá sérstaklega Baugsmiðlarnir t.d.Stöð 2. Þar tala þeir mjög oft við meðlimi Ísland-Palestínu sem fordæma Ísraelsmenn, en Stöð 2 talar nánast aldrei við stuðningsmenn Ísraela, þetta kallast hlutdrægni….
Hamas gera margt feleira en að berjast gegn Ísraelum. Þetta eru einnig hjálparsamtök sem byggt hafa upp skóla og heilsugæslustöðvar í Palestínu og gert margt annað til að hjálpa fórnalömbum hinnar grimmdarlegu kúgunnar Ísraela sem átt hefur sér stað í marga áratugi.
Með þessum sömu rökum gætur þú réttlætt al Qaeda, þeir eru líka með “hjálparsamtök” en ég efast um að nokkur maður myndi styðja þau samtök.
Bæði Hamas og al Qaeda eru á lista yfir hryðjuverkasamtök og eins og Bush sagði þá er ekki gerður greinarmunur á hryðjuverkamönnum eða þá sem hýsa þá, og það finnst mér allveg sjálfsagt.
Svo má heldur ekki gleyma því að yfir 20% af þeim Ísraelum sem Palestínumenn hafa drepið eru ísraelskir hermann, sem teljast lögeg hernaðarleg skotmörk þeirra meðan hernámi Ísraela á Palestínu á sér stað með sama hætti og Þýskir hermenn voru lögleg hernaðarleg skotmörk íbúa hernuminna landa nasista í síðari heimstyrjöldinni. Þar að auki má deila um það hvort ísraelskir landræningjar í landránsbyggðum Ísraela í Palestínu séu borgaraleg skotmlörk. Allavega hafa Palestínuenn rétt á að hrekja þá af landi sínum með vopnavaldi.
Þannig að þú réttlætir það að 80% sem þeir drepa eru óbreyttir borgarar? Sá sem drepur sem flesta óbreytta borgara af ásettu ráði er hryðjuverkamaður. Gætir þú ímyndað þér hvað myndi gerast ef t.d. Ísraelar eða Bandaríkjamenn myndu drepa óbreytta borgara í þessum hlutföllum? Þú ert vangefinn fáviti, réttlætir morð á óbreyttum Ísraelum en fordæmir dráp á palestínskum uppreisnarmönnum…..
Sú fullyrðing mín að Ísraelski herinn hafi framið um 80% þeirra hryðjuverka, sem framin hafa verið í þessari deilu er rétt og það er einföld staðreynd að Ísraelski herinn er grimmustu og miskunnarlausustu hryðjuverkasamtök í miðausturlöndum.
Þetta er sko lygi. Það er ekki hryðjuverk að ráðast á palestínska uppreisnarmenn sem eru skilgreindir af USA og ESB sem hryðjuverkamenn. Löndin sem eru í kringum Ísrael eru hryðjuverkaríki, ekki Ísrael. Þau hafa ráðist mörgum sinnum á Ísrael af fyrra bragði en alltaf tapað, þeir eru alltaf að hóta Ísrael eins og t.d. forseti Írans. Svo eru hryðjuverkasamtökin Hezbollah að skjóta eldflaugum á Ísreael öðruhvoru, þessi samtök eru studd af Sýrlandi og Íran. Árið 1983 drápu Hezbollah 241 bandaríska friðargæsluliða og 58 franska í tveim sprengjuárásum í Líbanon, friðargæsluliðarnir voru þarna til að hjálpa fólkinu og halda friðinn, finnst þér þessi árás réttlætanleg? Svo eru margir Sýrlendingar, Jórdanar, Egyptar o.fl. sem fara til Íraks og gera sjálfsmorðsárásir á óbreytta borgara þar.
Ísraelsríki hryðjuverkaríki? Haha, hlægilegt, týpískur áróður vinstrimanna.
Það er satt að mun fleiri Palestínumenn hafa fallið en langflestir þeirra voru vopnaðir uppreisnarmenn. Það skiptir ekki máli hvort einstaklingurinn er 12 ára eða 30 ára og með byssu eða handsprengju, hann er lögmætt skotmark. Tölurnar hér að neðan eru nokkurn veginn réttar.
Eins og þú sérð þá eru 69% af Ísraelum sem hafa fallið óbreyttir borgarar, og ef þú telur með óbreyttu útlendingana sem Palestínumenn hafa drepið þá hækkar þetta hlutfall ennþá meira. Þetta kalla ég hryðjuverk, að drepa sem flesta óbreytta borgara af ásettu ráði.
Þetta er af vef BBC:
Ísraelar drepnir af Palestínumönnum:444 óbreyttir borgarar drepnir í Ísrael
223 óbreyttir borgarar drepnir á Vesturbakkanum og Gaza
221 meðlimir í ísraelsku öryggisveitum drepnir á Vesturbakkanum og Gaza
Palestínumenn drepnir af Palestínumönnum:112 drepnir fyrir að vinna með Ísraelsmönnum.
50 drepnir af öðrum ástæðum.
Útlendingar drepnir:32 erlendir ríkisborgarar drepnir af Palestínumönnum í Ísrael.
10 erlendir ríkisborgar drepnir af ísraelskum öryggisveitum á Vesturbakkanum og Gaza.
15 erlendir ríkisborgarar drepnir af Palestínumönnum á Vesturbakkanum og Gaza.
Ísraelskir arabar(Palestínumenn):13 drepnir af ísraelskum öryggisveitum í Ísrael
4 drepnir af ísraelskum öryggisveitum á Vesturbakkanum og Gaza
Dráp Ísraelsku arabanna:3 ísraelskir ríkisborgarar drepnir af aröbum í Ísrael
1 meðlimur ísraelsku öryggissveitanna drepinn af ísraelskum araba
Palestínumenn drepnir af Ísraelum* 3218 drepnir af ísraelskum öryggissveitum á Vesturbakkanum og Gaza
56 drepnir af ísraelskum öryggsveitum í Ísrael
41 drepnir af ísraelskum ríkisborgurum á Vesturbakkanum og Gaza.
*BBC segir að það séu engar tölur um hlutfall óbreyttra palestínska borgara og uppreisnarmanna, en það er rangt. BBC eru þekktir fyrir að vera hlutdrægir og styðja Palestínumen, það er auðvelt að komast að hlutföllunum með því að fletta upp gömlum fréttum….
Hér eru tölur af vefsíðu samtaka(ICT) sem rannsaka hryðjuverk í heiminum:
Tölur frá 27. september 2000 til 1. janúar 20051542 Vopnaðir uppreisnarmenn drepnir af Ísraelum
1099 Óbreyttir borgarar drepnir af Ísraelum
406 Palestínumenn drepnir af Palestínumönnum
Samkvæmt þessum tölum eru 60% af þeim sem Ísraelar drepa vopnaðir uppreisnarmenn.
Þó svo að Ísraelsher hafi vitað af aðgerðunum í Sabra og Chatila þá er ekki vitað með fullri vissu hvort Ariel Sharon hafi skipulagt eða fyrirskipað aðgerðirnar, þú getur heldur ekki sannað það…
Svona í lokin þá finnst mér þú vera heilaþveginn af áróðri Palestínumanna og vinstrimanna. Samkvæmt þér er allt sem Ísraelar segja lygi og áróður en allt sem Palestínumenn segja sannleikur. Þú ættir að lesa hlutlausa fréttamiðla en ekki fréttir frá Palestine Monitor eða Ísland-Palestína. Langflestir fréttamiðlar í dag eru eru taldir vera til vinstri þannig að þú þarft að lesa sem flesta miðla til að fá réttar upplýsingar..
Hér fyrir neðan eru áhugaverðar síður um hlutdrægni fréttamiðla:
http://www.palestinefacts.org/pf_1991to_now_media_anti_israel_bias.phphttp://www.honestreporting.com/a/What_is_Bias.aspHeimildir:
http://news.bbc.co.uk/2/hi/middle_east/4294502.stmhttp://www.ict.org.ilhttp://www.malefnin.com