Les alltaf um þetta hungurverkfall og ég er búinn að komast að því að þetta er eitt stórt svindl BIG TIME, maður var nú farinn að sjá það fyrir svolitlu síðan.
Á ekki að hafa látið ofaní sig annað en vatn og ávaxtasafa og lítur allveg nákvæmlega eins út og þegar hún byrjaði í þessu hungurverkfalli.
Sá nú eina mynd í DV af henni með svona einhverskonar öndunargrímu og maður hélt að hún þyrfti á því að halda vegna þessara verkfalls en svo er ekki. Móðir mín vann eitt sinn á landspítalanum og sagði mér það að þetta er nú bara öndunargríma sem sumir þurfa að sofa með vegna kæfisvefns sem notast aðeins á nóttunni. Lætur svo taka myndir af sér fyrir DV með þetta á sér í þeirri von um að fá vorkun?
Og eitt er víst að fólkið sem situr í stjórn alþingis er nú allveg nákvæmlega sama enda verður það aldrei að hver og einn öryrki fari að fá 150.000 á mánuði skattfrjálst eins og Sonja fer fram á.
Þetta er bara lygi að hún sé í hungurverkfalli.
Meina ekkert DV að kenna, ekki miskilja.
Hún er bara að þykjast vera í þessu verkfalli.
Hefur pottþétt hámað í sig Hamborgarhrygg og dýrindis máltíðir yfir allar hátíðirnar og borðar eflaust ekkert sjaldnar á dag en hver annar einstaklingur.
Þetta er bara sannleikurinn, allaveganna það held ég.
Hvað segið þið um þetta mál, hvað haldið þið?
Cinemeccanica