Maður taldi dóttur sína andsetna
Maður í Bretlandi hefur verið ákærður í Lundúnum fyrir að myrða dóttur sína, sem hann taldi vera andsetna. Stúlkan, sem hét Samira var þriggja mánaða gömul. Hún lést af völdum höfuðáverka en var að auki með brunasár eftir sígarettur, brotin rifbein og snúna úlnliði og ökkla. Faðir stúlkunnar er 26 ára. Að sögn eiginkonu hans var maðurinn ofsóknaróður eftir neyslu krakks og heróins.

Maðurinn var fundinn sekur um morð en kona hans var viðurkenndi að hafa vanrækt barn sitt.

Maðurinn, sem heitir Sitab Ullah, var leiðbeinandi við North Westminster framhaldsskólann og aðstoðaði unglinga af afgönsku bergi brotna.

Eiginkona Ullah, Salma Begum, sat á bak við tjald þegar hún kom fyrir réttinn og lýsti því hvernig maður sinn taldi dóttur þeirra andsetna. „Hann vildi ekki að ég gæfi henni of mikið að borða. Ef hún varð gráðug þá kvartaði hann vegna þess að hann taldi að veran sem væri inni í henni gæti nærst látlaust,“ sagði Begum og bætti við að þegar Ullah hóf að misþyrma barninu hafi hann sagt að hann væri ekki að skaða barnið heldur veruna inni í henni.

Begum mun einu sinni komið að manni sínum þar sem hann var að reyna að kyrkja barnið. Þá sagði hún að á dánardegi þess hafi hann hrist barnið til en farið síðan út að kaupa fisk og franskar. Þau hafi síðan reynt að gefa barninu að borða en það hafi ekki sýnt nein viðbrögð.

Að sögn Richards Whittams, saksóknara í málinu, voru beinbrot litlu stúlkunnar allt að tveggja mánaða gömul. Þá hafi blóðblettir fundist í lofti og á veggjum svefnherbergis hjónanna en þar svaf barnið. Sagði saksóknarinn ljóst að litla stúlkan hafi sætt miklu ofbeldi frá hendi föður síns á tveggja mánaða tímabili.

Að sögn lögreglumanna sem unnu að málinu er þetta eitt versta mál sinnar tegundar sem þeir höfðu haft afskipti af.



Þetta er bara ógeðslegt! 3 mánaða barn.. og faðirinn byrjaði að misþyrma henni er hún var 1 mánaða!