Á forsíðu sé ég mynd af 10.000 króna seðli og Davíð Oddssyni á honum. Undirritað er að í framtíðinni þegar engum dettur í hug að véfengja “þá staðreynd” að Davíð Oddsson er eitthvað voða mikið æði, þá muni hann prýða 10.000 króna seðlana.
Og segðu mér þá, háttvirtur ritandi; HVAÐ er svona merkilegt við Davíð Oddsson? Hvað gerir hann annað en að svara ekki þegar á hann er yrt, og að tala aldrei nema þegar hann einn fær að tala, eða þegar hann þarf að leika pabba landsins með (reyndar snilldarlegum) línum eins og “Svona gera menn ekki!” og álíka.
En reyndar verð ég að segja að mér finnst alveg við hæfi að setja manninn framan á 10.000 króna seðil, til að minna alla á það hver gerði 10.000 króna seðilinn þarfan. Takk fyrir verðbólguna, ASSHOLE! Sjálfstæðismenn kunna sér ekki hóf í sínum stefnum frekar en freakin' Kvennalistinn, enda er þeirri vitleysu sem betur fer lokið.
Davíð Oddsson er klár og menntaður maður, það efast ég ekki um í eina sekúndu. En hann vinnur á forsendum sem ganga út á… well, hann sjálfan. Hann hefur aldrei neitt um málin að segja nema þegar enginn hefur færi á því að rökræða við manninn, og eðlilega virðist hann aldrei segja neitt af viti þegar það kemur aldrei neitt neikvætt fram varðandi stjórnun hans þar sem hann er aldrei á svæðinu sjálfur.
Ég segi iss. :) Það að hann sé leiðtogi hægrimanna gerir hann ekki að neinum snillingi.<br><br>Friður.
<A HREF='mailto:helgi@binary.is'>Helgi Hrafn Gunnarsson</A>
helgi@binary.is