Þú fyrirgefur en ef þú ert svona blindtrúaður og nánast heilaþveginn um BNA og bandamenn þeirra þá skaltu ekkert vera að hafa fyrir því að svara mér. Ég nenni ekki að tala við vél.
Hvað ert þú annað en heilaþveginn af Evrópubúum ?
Veggurinn á eftir að minnka árásum á Ísrael um lágmark 80%. Eiga Ísraelar virkilega að sleppa því af því að það setur úr skorðum líf nokkra bænda í Palestínu ?
Þetta ferska vatn sem þeir gefa Palestínumönnum er allt frá Ísraelskum vatnsveitum. Fyrir tíma Ísraelsmanna þá gengu arabarnir eftir vatni og höfðu brunna og eitthvað álíka, það voru Ísraelsmenn sem að komu með nútíma vatnsveitur þangað, og það er ekkert sem segir að þeir þurfi að deila því.
Ísraelsmenn hertóku svæði Palestínumanna EFTIR að það var ráðist á þá af Palestínumönnum. Og á meðan að Palestínumenn ráðast reglulega á saklausa Ísraela, þá skiljanlega vilja þeir ekki verðlauna Palestínumönnum með því að skila landssvæðum.
En Sharon vill ná friði og hann vill skila landssvæðum. Ef að friðarferlið gengur vel á næstunni þá mun hann líklega skila Palestínumönnum nokkrum borgum sem voru herteknar fyrir nokkrum árum.
Ísraelsmenn skutu ekki þetta barn, það er enginn vafi á því. Það eru engar raunverulega heimildir sem sanna það að Ísraelsmenn hafi skotið þessa stúlku.
En af hverju skeður þetta einmitt núna ? Öfgamenn í Palestínu gerðu þetta líklega til þess að kenna Ísraelum um það, og stöðva núverandi friðarferli.