Þetta rugl
og gefið þúsundum bólugrafinna ungmenna tækifæri á því að sleppa frá vítahringi tölvuheimsins -
HAHAHAHAH afhverju er alltaf fjallað um DC eins og einhvern rosahættulegan og mystískan glæpahring þar sem sumir modarnir sitja við bleika mac-tölvu með loðkraga um hálsinn og með pimphatt og eyða deginum í að láta “strákana” finna nýjustu rippin á meðan hinir modarnir sitja í myrkvuðu herbergi í leðurstól klæddir jakkafötum, étandi spaghettí fyrir framan tölvuna og eyða deginum í að láta “Bernoscoli con R0xor” (gaur íklæddur svörtum jakkafötum íklæddur leðurhönskum sem drepur fólk með því að hakka inn í tölvur þeirra og sprengja þær og drepa “óæskilega aðilann”, heimili þeirra og fjölskyldur í sprengingunni) losa hubinn við “óæskilega aðila”.
Síðan eru allir nýjir sem koma þarna inn litlir saklausir drengir sem komast yfir fyrsta “efnið” sitt með cyber-sex vændi (þá verða þeir einir af “strákunum” sem ég minntist á áðan).