“I'd love to go back to when we played as kids,
Innlimun gyðingabyggða á Vesturbakkanum
Nú er það ljóst. Georg Runni, bandaríkjaforseti styður þær glæpsamlegu aðgerðir Ísraelsstjórnar að innlima 6 gyðingabyggðir á Vesturbakka Jórdanar inn í Ísraelríki. Hvaða vald heldur hel… fávit… að hann hafi til að úrskurða um lögmæti þessara glæpa. Hvað mundi hann sjálfur segja ef Mexíkóar krefðust þess að fá aftur Kaliforníu og Oregon, því þau voru undir stjórn Mexíkóa áður en USA vann þau af þeim í stríðum. Ísraelsríki er eitthvað það fáránlegasta ríki í veröldinni, reist á fáránlegum forsendum. Þessu má líkja við það að Norðmenn vildu fá helming Íslands aftur. Svo mundu þeir fara fram á meira og meira svæði. Gyðingar voru 1/3 hluti íbúa Palestínu árið 1948. Þeir fengu hins vegar 55% landsins. Nú eiga Palestínumenn svipað stóran hluta af Palestínu eins og Vatnajökull er af Íslandi. Þar að auki eru Ísraelsmenn búnir að hertaka þetta svæði.