Það er löngu sannað að aukin byssueign þýðir aukna tíðni dauðsfalla, bæði morða og sjálfsmorða. Væntanlega stafar
það af því að það er mun auðveldara að fara með byssu
í skólann og salla niður samnemendur, en að fara með
hníf eða eitthvað annað tól.
Gömlu rökin um að byssur drepi ekki, heldur sé það fólk sem drepi, eiga ekki lengur við, eftir að samband byssueignar og dauðsfalla sannaðist. Vissulega notar fólkið byssurnar, en á meðan það er svo mikið af andlega vanheilu fólki úti og með aðgang að byssum, þá getur almenni borgarinn ekki um frjálst höfuð strokið.
Enda hefur það sannast að byssueign bandaríkjamanna er komin í vítahring, allir þurfa að eiga byssu til að vernda sig fyrir öðrum mönnum sem eiga byssur. Og ekkert er hægt að gera í þessu, því NRA og önnur hagsmunasamtök að baki Repúblíkönum eru til, til þess eins að reka áróður fyrir byssuréttindum.