Ég er búinn að lesa nokkra pistla af þessari vefsíðu og ég verð að segja að lægra getur kaninn ekki lagst.
Þeir tala um hvað allt væri miklu betra ef BNA réði heiminum og að hervald sé lausn alls vanda. Þeir útmála evrópu sem einhverja hálvita og veimiltítur sem leita eftir friðsamlegum lausnum í stað þess að sprengja borgir til grunna.
Þessi heimsvaldastefna sem þeir virðast halda uppi er fáránleg, hafa menn ekkert lært af mannkynsögunni, ég held að Evrópubúar séu einfaldlega skynsamari eftir tvær heimstyrjaldir á einni öld. Þó að kaninn hafi tekið þátt í þeim þá vita þeir ekkert um það hvernig það er að berjast á sínu heimalandi, og mótmæla með því að nefna frelsisstríðið er að mínu mati vond rök þar sem það er óralangt síðan og var ekki eins stórt og blóðugt og heimstyrjaldirnar.
Ég er þó þeirrar skoðunnar að heimsbyggðin eigi að sameinast undir eitt en þessi leið sem þessir fáráðir stinga uppá er vitfirrt!
Virðingarfyllst virðið mínar skoðanir/fávisku.<br><br>BF1942: Torquemada
<a href="
http://www.simnet.is/fantar">Fantar</a