Bettybo, ef þú vissir það ekki þá er ég stelpa. Það breytir því ekki að mér er ekki drullusama um sannleikan. Ég var ekki viss fyrst, en sé núna að ég hef haft rétt fyrir mér. Þessi 10-20% tala er um kynferðislega misnotkun almennt og alvarlega kynferðislega áreiti. Að nauðgarar eru oftast síbrotamenn er vitað mál, og þarf ekki mikla þekkingu á samfélagsmálum til að vita. Vinstri Grænir voru því að snúa út úr til að fá athygli, og með því að gera lítið úr nauðgunum að mínu mati. Eins og týpurnar sem kalla mann strax rasisti fyrir ekki neitt (til dæmis fyrir að gagnrýna önnur menningarsamfélög, svona eins og við sem gagnrýnum okkar eigið almennt gerum þá líka, gagnrýni er jú bara góður hluti af lífinu og kemur í veg fyrir stöðnun), þær vinna þar með með rasistum, því hugtakið fær vægari merkingu og verður lítilvægara.
Vinstri Grænum fyrirgefst að sjálfsögðu ekki að fara með lygar um svona alvarlegt mál, og hefðu átt að ráðfæra sig við sérfræðinga áður en þeir “túlkuðu” þessar staðreyndir bara á sinn eigin hátt, þar til þeir voru búnir að snúa þeim á haus.
Ég hef alltaf varið þá hér áður fyrr, til dæmis þegar fólk hefur kallað þá komma, þegar í reynd ekkert fleiri þar eiga kommúníska fortíð en til dæmis í samfylkingunni (og svo er orðið kommi ekki =illur) en er nú búin að missa allt álit á þeim. Maður verður að geta treyst stjórnmálamönnum og svona gera bara amatörar og óábyrgir menn, sem ættu frekar að fá sér vinnu við fluguhnýtingar eða eitthvað sem felur undir sér ábyrgð í þeim mæli sem þeir gætu frekar staðið undir.