Ég hef ekki séð neinn mann úr þessum flokki sem ég vissi hver var einu sinni, nema nú Ástþór jú. Bara að pæla í hvort einhver hérna þekkti þetta fólk eða vissi eitthvað um það.
Leiðindapúkum? Það skiptir engu máli. Mér leiðist persónulega rosalega allt tal um hvað Davíð sé fyndinn og skemmtilegur, Ingibjörg ákveðin og hress og bla, bla, bla. Allt þetta skiptir jú engu máli nema fyrir fólk í skemmtanabransanum. Stjórnmálamaður á að geta sinnt stjórnmálum á sama hátt og til þess er ætlast af skúringarmanni að hann skúri vel.
Ég vil frekar leiðindaskjóðu sem ég get treyst, bæði í skúringar og stjórnmál, en einhvern voða hressan eða fyndinn.
Svo veit ég ekki betur en margir af vafasömustu stjórnmálamönnum sögunnar hafi einmitt verið afar sjarmerandi, og hún sé einnig fullt af leiðindapúkum sem reyndust afar vel.
Ekki að ég sé að verja þennan flokk, ég veit ekkert um hann, en já Ástþór er stór mínus. Hann væri ágætis trúður svo sem, en hann hefur stundum farið yfir strikið og gert hræðilega hluti, eins og að ljúga að það væri að koma hryðjuverkaárás á Ísland og allt þetta. Ég hef lítið álit á honum, jafnvel sem trúði og finnst hann ætti bara að snúa sér aftur að viðskiptum eða hvað það var sem hann var að gera áður.