Ég fór um daginn á eina síðu þar sem eitt ég las mark sem kom mér á óvart:
———- ———-
Eiturefni í sígarettureyk
Í tóbaksreyk eru meira en 4000 efnasambönd, þar af yfir 40 sem geta valdið krabbameini. Vissir þú að sígaretta inniheldur:
AMMONÍAK – mest notað til að hreinsa klósett.
ARSENIK – bragðlaust hvít eiturefni, mest notað í iðnaði.
ASETON – til að hreinsa naglalakk.
BENZÓPYREN – getur dregið úr frjósemi og skaðað barn í móðurkviði.
BLÁSÝRA – banvænt eitur, var notað í fangabúðum nasista.
BRENNISTEINSVETNI - mjög eitrað við innöndun.
EDIKSÝRA - myndast við gerjun.
EITURSÝRA – þar tæplega frekari útskýringa við.
ELDFLAUGAELDSNEYTI – langar þig til tunglsins (eða himna)???
KOLMÓNOXÍÐ - eitrað við innöndun. Hætta á alvarlegu heilsutjóni við innöndun við langvarandi notkun. Getur skaðað barn í móðurkviði.
KVEIKJARABENSÍN – spennandi, eða hitt þó heldur.
KVIKASILFUR – þungt gráleitt frumefni.
MÖLKÚLUR – til að ná óþef úr fataskápum.
NIKÓTÍN - eitrað við inntöku. 1 dropi drepur mús.
PÓLÓNÍUM 210 - mjög geislavirkt og getur valdið krabbameini.
VINYLKLÓRÍÐ - getur valdið krabbameini.
ROTTUEITUR – er eitthvað líkt með mönnum og rottum?
SKORDÝRAEITUR – sumir geta verið óttalegar pöddur.
———- ———-
Núna spyr ég þig, viltu hætta að reykja?