Fyrir íslenska rasista væri annars forvitnilegt að vita að Írar (Erfðagreiningin hefur fundið út að um helmingur genanna okkar er líklega frá þeim) voru líka hataðir fyrir kynþátt sinn, en mál þeirra írska er ekki skylt germönskum málum heldur telst það keltneskt mál, og írar því ekki germanir að mati margra kynþáttahyggjumanna. Englendingar litu mikið niður á Íra sumir og Bandaríkjamenn tóku það upp frá þeim. Í Bandaríkjunum voru Írar þrælar ásamt svörtum á bómullarökrunum og litið á þá sem jafningja, því í Suðurríkjunum var lengi ekki litið á Íra sem hvítt fólk (sökum ógermansk máls eða eitthvað, af svipuðum ástæðum fyrirlitu sænskir kynþáttahyggjumenn Finna) og sem óhvítt fólk voru þeir látnir þræla á ökrum þar sem þeir hnigu margir í dauðan. Hluti þeirra blandaðist svörtum, og þess vegna bera margir svartir Bandaríkjamenn írsk nöfn.
Þannig að það er ekkert hlægilegra en íslenskur rasisti, þar sem samkvæmt ýmis konar kynþáttahyggju værum við ekki hvít.
Nazistarnir urðu annars víst fyrir miklum vonbrigðum þegar þeir komu til Íslands, sem þeir höfðu álitið eitthvað voðalega hvítt land, og sáu sannleikan, að Íslendingar eru ekki sérlega “norrænir” í útliti.
Svo FÍÞ klikkhausarnir fengu líklega ekki inngöngu í klanið , Írar voru ekki vinsælir þar í gamla daga amk.