Ömurlegt að svona skuli evrópubúi eins og þú hæðast að bandaríkjamönnum sem ekki bara einu sinni, heldur oftar en 2svar hafa frelsað Evrópu m.a. undan nasisma og dauða. Einnig spyrntu þeir við þannig að kommúnisminn flæddi ekki yfir áfluna. Bandaríkjamenn eru að hjálpa þjóð í nauðum, losa hana undan harðstjórn og morðingjahyski hans. Það ætti að syngja um dáð þeirra en ekki hæðast að þeim fyrir það. Hversu illkvittin getið þið eiginlega verið gagnvart þessari guðs-voluðu írösku þjóð sem hefur þurft að þola sult, dauða og pínu í marga áratugi undir stjórn þessa morðingja, Husseins?