Það er SKANDALL að Davíð Oddson og bushsleikjan hann Halldór eru búnir að styðja bandaríkjamenn í þessu fáránlega stríðsbrölti þeirra. Við Íslendingar erum búin að vera að monta okkur út um allan heim að Ísland sé svo friðsælt og hlutlaust og allt þar fram eftir götunum. Skoðanakannanir undanfarna daga hafa einnig sýnt að meirihluti landsmanna vill ekki að það verði farið út í hernaðarátök án leyfis Sþ. Ef BNA ræðst á Írak eru þeir gjörsamlega búnir að skemma áhrifavald SÞ. Mér finnst að Davíð og Halldór ættu virkilega að pæla í því að segja af sér.