Nei, ég nota ekki kannabis. Ég ákvað að hætta því, þar sem að upp fer að renna sú stund að ég kem opinberlega fram með skoðanir mínar á lögleiðingu kannabisefna, og ég veit alveg að það fyrsta sem löggan gerir er að kíkja í heimsókn til mín, alveg brjálaðir.
Ókey, kannabis GETUR verið þunglyndisvaldandi, en það fer hreinlega bara eftir því hvað þú reykir. Ef þetta væri löglegt, væri dæmið sennilega svipað og í Hollandi, þú labbar inn á þann stað sem selur efnið, skoðar lista, eða “matseðil” eins og ég vill kalla hann, og á honum stendur nákvæmlega hvað efnið gerir við þig, hvort þú verður up eða down, hyper eða slow motion, kannabis er ekki það sama og kannabis. Áfengi er líka MJÖG þunglyndivaldandi, og hvetur fólk til ofbeldis og óábyrgrar hegðunar, það vita það allir sem vilja vita að kannabis er ekki neitt miðað við áfengi, eða sígarettur ef út í það er farið.
Jú, kannabis er persónubreytandi, en oftast nær á góða vegu, enda er það persónubreytandi að reykja gras, vegna þess að það eru pólar í heilanum á okkur öllum sem eru sérstaklega til þess gerðið að taka á móti THC, sem er virka efnið í kannabis, og þessir pólar hjálpa heilahvelunum á þér að vinna saman, og opna líka nýjar rásir í heilanum, sem lokast um leið og víman rennur af manni.
Kannabis leiðir EKKI í flestum tilfellum til notkunar á sterkari efnum, ég reykti í fjölda ára, og margir vinir mínir, og þó svo að mér hafi verið boðið allur andskotinn, meskalín, kókaín, amfetamín, sveppir, ecstasy. Flestir prófa ný og sterkari efni á fylleríum, prófa að spítta til að geta djúsað lengur osfrv. Ég á líka marga vini sem hafa leiðst út í notkun sterkari efna, meðal annars þekki ég mann sem bjó í ónefndu kókaínríki, tók uþb 8 grömm af kóki í nefið á hverjum degi í nærri því eitt ár. Í dag reykir hann gras og fær sér bjór með því. Þeir sem að á annað borð eiga eftir að leiðast út í sterkari efni, gera það hvort sem að kannabis er til staðar eða ekki, ólöglegt eða löglegt, en með þvi að hafa það ólöglegt gerum við það líklegra að krakkar prófi sterkari efni, vegna þess að maðurinn sem selur þeim hass, vill líka selja þeim kókaín og ecstasy, og reynir þessvegna að pranga þessum efnum inn á þau. Td. notar aðeins 1 af hverjum 120 kannabisneytundum BNA manna kókaín í einhverjum mæli. Kannabis leiðir EKKI til notkunnar sterkari efna.
Aðgerðarleysi? Hverskonar lowlife aumingja af dópistum átt þú fyrir vini? Ef þetta er þá satt sem þú ert á annað borð að segja. Þegar ég er stoned held ég áfram minni reglulegu rútínu, vaska upp, kaupi í matinn og allt þetta, ég er bara skakkur meðan ég geri það.
Ég þekki líka fullt af fólki sem er dáið út af fíkniefnum, og mörg þeirra snertu ekki á hassi, sprautuðu sig frekar með spítti eða staðdeyfilyfjum fyrir hross. Ég er líka viss um að einhver þeirra væru lifandi í dag ef kannabis væri löglegt.
Ég held því fram sem ég veit, og ég veit allt sem þarf að vita um kannabis. Ef þú hefur látið heilaþvo þig með asnalegum og barnalegum hræðsluáróðri SÁÁ, kenni ég í brjóst um þig.