Hver sá sem hatar og fyrirlítur Árna Johnsen og tekur þátt í þessu einelti og kjaftasögum um hann, svo sem með dónalegum svörum á svona korkum, ætti að líta aðeins í eigin barm.
Hvað með alla nauðgarana og morðingjana?
Viljum við virkilega styrkja þá heimskulegu hugmynd dómskerfisins, að stuldur, vissulega alvarlegur hlutur, sé alvarlegra mál en slíkt, ásamt smá eiturlyfjasmygli til persónulegra nota? (Ekki að ég hata eiturlyf)
Tek það fram að ég er ekki Sjálfstæðismanneskja.
En kjaftakelling er ég enn síður!
Og ekki vil ég stuðla að því að þetta manngrey, sem gerði þetta jú af sér, en er enginn fjöldamorðingi eða eitthvað, og hans fjölskylda og börn lifi hér hræðilegu lífi það sem eftir er innan um rógberandi kjaftakellingar og menn af því tagi sem hlakka yfir mistökum og óförum annara.
Svo eru alvarlegri glæpamenn og ömurlega dómskerfið eflaust mann fegnust þessari ofur-athygli á Árna!