Hann stendur sperrtur og viðurkennir enga sök. Steingrímur Njálsson er búinn að vera i blöðum hér á íslandi síðan 1963. Ólíku saman að jafna. Það er rétt að efnisleg gæði eru metin meir í vestrænni menningu en mannslíf. Að bera saman mál árna og svo ofbeldisverk, er að mínu áliti samanburður á appelsínum og eplum. Nauðgun á 14 ára barni er þrátt fyrir ákvæði í lögum, ekki refsivert. Samanber sýknudómur í máli grunnskólakennara. Hann nauðgaði barni í votta viðurvist, í partý. Stúlkan var áfengisdauð. Henni sjálfri að kenna segir dómur. Ekki furða að almennir borgarar séu áttavilltir í íslenska réttarkerfinu. Ekki þarf ríkisstjórnin þarf að hlíta dómum hæstaréttar. Samkvæmt jafnræðisreglu gæti árni lagað sinn dóm að vilja. Greitt til baka það sem hann telur sig skulda(v/ mistaka við reikningsgerð að egin sögn), og þar með stikkfrír. Það sem árni er að ganga í gegnum, frá almenningi, er ekki það sama og morðtilraunir á Steingr. Njáls. Eftir að árni afplánar sinn dóm, telst hann hafa greitt skuld sína við þjóðfélagið. Allar refsingar eftir það geta talist “spark í liggjandi mann” og er ekki það sem skuldlaus einstaklingur á skilið. En raunveruleikinn er allur annar, því miður.
“Nothing except a battle lost can be half so melancholy as a battle won.”
Nokkuð til í þessu. En það er nú fyrst og fremst kjaftakellinga stemmningin sem pirrar mig. Mér finnst bara að fyrst það þarf að fara út í eitthvað galdrabrennuflipp og finna grýlu mætti “verðugri” einstaklingar gjalda þess.
En fyrst ég er alltaf að tala um Ísrael hérna virðist vera, þá er lágmarksrefsing þar í landi fyrir nauðgun, víst 30 ár, og er þá vel sloppið. Svona er gildismat fólks ólíkt, en þetta sýnir að þessir lögfræðingar hér geta ekki afsakað sig með að vera fastir í einhverjum lagaklausum, þá er bara að breyta þeim, óþarfi að klaga allt upp á kerfi sem menn fundu upp sjálfir.
Gyðingar eru nú ekki beinlínis þekktir fyrir að dizza reglur og fyrst þeir geta haft réttlátari dóma í svona málum ættum anarkistar eins og við (í jákvæðu merkingunni að sumu leyti) að geta það líka.
0