Já, það er satt einföldunin er til í hina áttina líka. En þegar talað er um liðinn tíma, en ekki nútíðina, erum við mjög gjörn á að sjá hlutina í fölsku ljósi finnst mér, og kenna “okkur sjálfum” um allt sem miður fór, og þessa söguskoðun breiðum við svo út í gegnum kvikmyndir og fleira, meðan hin hliðin er ekki kennd, hvorki hjá okkur sjálfum, né í hetjudýrkandi heimahögum þar sem allir horfa samt á Amerískt sjónvarp, þó þeir séu gamaldags í hugsun hvað varðar sjálfa sig. Jú, jú, auðvitað er ekki til nein ein rétt sýn á hluti eins og WW2 sem eru bara of flóknir, en það sem ég er að tala um er að Japanir frömdu grimmdarlegar vísindatilraunir á Kóreubúum sem jafnast vel á nazista, frömdu fjöldamorð á Kínverjum, og hafa löngum litið á þessar þjóðir sem “óæðri kynþætti”….En Japanar vita þetta ekki almennt, nema mikill minnihluti, því um þetta er einfaldlega ekki rætt, og þeir lesa bara “westernized” sögu um restina af heiminum, og í gegnum afar rósrauð, og nei, ekki af kóresku og kínversku blóði, sína eigin. Þeir vita hins vegar allt um glæpi breska heimsveldisins, þrælahaldið í Ameríku og allan þann standard pakka, sem jú, jú, er hræðilegur, en bara ekki minnsta verri en þeir. Þetta gildir um restina af heiminum að ótrúlega miklu leyti, Arabar og svo framvegis eru almennt ekkert að læra um myrku hliðina á sjálfum sér, þó þeir horfi á Amerískt sjónvarp og lesi “westernized” Evrópu- og Ameríkusögu.
Og á meðan horfum við rósrauðum gleraugum á sögu þessara veslings kúguðu landa, nú eða spenndandi fjarlægu landa og okkur er nokk sama þó roðinn komi af blóði kóreumanna og slíkra.
Og við fleytum auðvitað kertum til að minnast kjarnorkuárása BNA í veslings Japan, og aldrei er einu kerti fleytt fyrir Kóreskt barn sem var myrt sem óæðri vera kynþáttalega séð í vísindatilraun þar í landi………Þetta er myrka hliðina á því að vera “Euro-Centric” (ofur áhersla á sögu fólks af Evrópskum uppruna) with a twist of hippie………..þannig gerumst við hermenn í stríðinu gegn sannleikanum, viðhöldum fáfræði og færum öðrum, sem ættu að vera að stunda sjálfskoðun, vopn upp í hendurnar gegn okkur með að “pant vera alheimsgrýlan”….
Einn Kóreubúi til eða frá skiptir jú ekki máli, og við þurfum að spara kertakostnaðinn frekar en fara loksins að kenna sannari sögu…Og svo er sagt að hippar séu ekki materalískir!…Ja, hérna….