Ég býst við að þetta eigi að vera mennirnir tveir sem voru skotnir því þeir áttu að hafa ætlað að sprengja strætó og drepa farþega hans í Ísrael. Býst við að þeir séu lítið klæddir afþví það hafi þurft að leita að sprengjum og mögulegum vísbendingum. Ég veit ekki mikið um þetta mál og held að það hafi ekki verið upplýst, en Morgunblaðið virðist komið aftur í gyðingahatursgírinn og sagði mennina hafa verið “myrta” og birtir svo þessa óhuggulegu misvísandi mynd, þó ekkert sé vitað nema ásakanirnar hafi verið réttar enn sem komið er amk.
Hryðjuverkamenn út um allan heim eru samt farnir að velja sér síauðveldari skotmörk enda hræddir. Nýlega myrtu þeir og særðu til dæmis ótal ólöglega svarta innflytjendur af ógyðinlegum uppruna í hverfi sem vitað er að mest slíkir búa í. Ísraelska ríkisstjórnin hjálpaði fólkinu að komast á sjúkrahús og slíkt og innflytjendalögreglunni var bannað að mæta á svæðið þegar sumir þeir sem eftir lifðu báru vitni. Líkamsleifar sárfátækra Afríkubúanna sem Palestínumennirnir myrtu láu sundurtættar um allt, þeyttar hingað og þangað í allar áttir. Þeir vissu vel hver fórnarlömb þeirra yrðu, og voru tilbúnir til að drepa þá fyrir því. Sýnir að barátta þeirra verður sífellt ógeðfeldari og skaðar þeirra eigin þjóð meir og meir.
Ekki fékk það mál mikla umfjöllun í fjölmiðlum, þó það sé veigameira en margir halda. Því þetta er einmitt það sem sérfræðingar eru farnir að vara við í gríð og erg, að hryðjuverkamenn munu í framtíðinni velja sér sí auðveldari skotmörk út um allan heim og það séu litlir bæjir, lítil lönd, og eins og sést fátækrahverfi ólöglegra innflytjenda Ísraels, sem þurfi að fara að vara sig hvað mest. Hryðjuverkamenn verða nefnilega símeiri chicken.