Fender: “Bin laden á að vera álitin hetja, hann þorði að standa upp á móti þessum andskotans Bush og bandaríkjarusli sem er að rústa heiminum okkar……afskiptasömu djöflar. ”
Gerirðu þér grein fyrir því að í augum Bin Ladens , ert ÞÚ, sem Vesturlandabúi, Íslendingur og þar með óbeinn aðili að NATO og fleiru, einmitt andskotans afskiptasamur djöfull og rusl, sem ert réttdræpur, alveg eins og þér finnst Kanarnir vera? Hann Bin Laden sér bara nánast engan mun á þér eða hvaða öðrum “réttdræpum” strák sem er í World Trade Center, þess vegna hefur hann hvatt til hryðjuverka víða um Evrópu og fagnaði ákaft árásinni á Bali þar sem þetta voru nú ekki mest Kanar að deyja.
Síðan ef hann myndi lesa þessa grein þína myndi hann skellihlægja að þú, réttdræpur aumingi í hans augum, værir að lofa hann og prísa. Talandi um auglýsingar á lágu kaupi! Honum væri alveg drrrrrrrrrrullu sama þó allir vinir þínir og fjölskylda myndu deyja, en þér finnst hann æðislega kúl og reynir að gera orðstýr hans sem mestan. Ekki beint 50%-50% samband er það, …..dyramottan þín? Hehe