Sæll. Þú veist greinilega eitthvað um Islam, eins og flestir Íslendingar og svo til ekkert um Gyðingdóm, eins og flestir Íslendingar. Áður en ég byrja að leiðrétta þig vil ég segja þér að ég þekki Gyðinga persónulega sem ég hef kynnst erlendis, þeir hafa sagt mér margt og einnig hef ég haft fyrir því að lesa um trú þeirra og sumt af ritum þeirra sjálfra, það er þeirra “Nýja Textamennti” sem eru reyndar miklu lengri bækur en okkar. Að trúarbrögðin séu svona rosalega lík er algengur misskilningur, og algert bull í ljósi þess að flestir Gyðingar, þar með talið “öfgatrúarmenn” trúa hvorki á helvíti, né Satan í kristni merkingunni, og er trúin á suman hátt líkari flestum Austrænum trúarbrögðum en Islam eða Kristindómi, fyrir utan Eingyðis-partinn það er að segja…..En þetta gætir þú vitað, hins vegar veistu greinilega það lítið um zionisma að þú ert í stöðu manns sem heldur að hvítt sé svart eða svart hvítt, zionismi er nefnilega ekkert tengdur trú endilega, hvað þá öfgatrú sem hann tengist síst af öllu.
Zionismi hefur ekkert endilega með Gyðingdóm að gera. Flestir frumkvöðlar zionismans, og flestir frægustu zionistarnir voru trúlausir, þ.e atheist. Í dag eru svo til allir trúlausir Gyðingar zionistar, og svo til allir frjálslyndir Gyðingar líka (flestir frjálslyndir Gyðingar búa í USA, ekki Ísrael). En öfgatrúar Gyðingar, “bókstafstrúarmenn” eru líklegastir Gyðinga til að vera anti-zionistar, ekki eru allir öfga-trúar Gyðingar anti-zionistar, en hlutfallslega lang-lang flestir af öllum hópum Gyðinga eru þar anti-zionistar, og hafa öfgatrúar Gyðingar í New York, Ísrael og víðar marg oft mótmælt Ísrael opinberlega. Öfgatrúar Ísraelar eru litnir hornauga af sumum öðrum Ísraelum fyrir að vilja ekki gegna herþjónustu, en ríkið leyfir það samt, enda lýðræðisríki sem fangelsar menn jafnvel ekki fyrir að neita að gegna herþjónustu af trúarlegum ástæðum.
Öfgatrúar Gyðingar, og reyndar margir aðrir Gyðingar, segja hið RAUNVERULEGA Ísrael, ekki vera orðið raunverulega til. Þetta “veraldlega” ríki, Ísrael, sé einungis staðurinn þar sem það mun fæðast. Ísrael verði til, sem land, Gyðingaþjóðin er samt alltaf kölluð Ísrael, með eða án lands, verður til þegar Messías kemur. Sumir Gyðingar segja Messías mann sem kemur, en ekki færri að hann sé breyting í heiminum. Öfgatrúar Gyðingar (Hasidim) segja sumir, að Messías muni aldrei koma, hann muni hins vegar fæðast sem guðdómlegur kærleikur og skilningur í hjörtum allra jarðarbúa, frjálslyndir Gyðingar segja sumir að Messías séu þær félagslegu umbætur , umburðarlyndi og þekking sem fyrr eða síðar muni breiðast út um allan heim og gera okkur að betra mannkyni. Um þetta, eins og flest í Gyðingdómi, eru margar skoðanir, en Gyðingdómur er algjör andstæða við öll trúarbrögð, svo sem Mormóna, Krossinn, eða eitthvað þar sem ætlast er til að menn séu sammála um sem flesta hluti sem tengjast trúnni. Gyðingdómur er miklu opnari, og þess vegna er til máltækið “tveir Gyðingar= þrjár skoðanir” sem er ekki bara eitthvað til í, það er alveg dagsatt.
Zionismi= öfgatrú er mesta fáfræði sem unnt er að halda fram. Lestu um zionistanna, alvöru bækur, ekki internetið sem er fullt af lygum, rógburði og rasisma, og þú munnt komast að því að flestir zionistarnir voru trúlausir. Ísrael er enn í dag með hvað hæst hlutfall trúleysingja af öllum vestrænum ríkjum, trúleysi er mjög “inn” og ókei, þar og hefur alltaf verið. Gyðingur sem trúir ekki á Guð eða eftirlíf, sem er mjög algengt, er samt manna líklegastur til að halda boðorð Gyðingdóms, mataræði Gyðingdóms, og leggja rækt við sem flest sem tengist Gyðinglegri menningu, því Gyðingar eru ekki bara trúarhópur, þeir eru þjóð menningar, einstakrar, flókinnar, djúprar menningar sem hefur varað, en um leið þróast og breyst (það er bæst hefur við hana, mjög lítið hefur horfið) í 5000 ár….
Ég er alls ekki að ásaka þig fyrir að fara með fleypur þar sem líklega hefur einhver álíka fáfróð manneskja sagt þér þetta, en að segja að zionismi sé öfgatrú er ekki bara ekki rétt, það er alrangt og í raun og veru eins langt frá sannleikanum og hægt er að komast, það eru öfgatrúar Gyðingarnir sem eru líklegastir til að vera ekki zionistar, en öfgatrúar Gyðingur er annars mjög ólíkt því sem fólk heldur líka, til dæmis mjög ólíkt því að vera öfga-kristinn, en slíkur Gyðingur er líklegur til að trúa á fyrri-líf, hreinsunareld og þannig, en mjög ólíklegur til að trúa á helvíti og fleira sem kristnir öfga-trúarmenn trúa á og það er litið á það sem hálfgerða villutrú.
http://www.beliefnet.com er með upplýsingar um ólíkar tegundir Gyðingdóms, sem og ótal upplýsingar um önnur trúarbrögð, allt frá “Earth-based” : Wicca,Ásatrúar…. (Þú vissir kannski ekki að einn fyrsti og helsti fylgismaður Ásatrúar var Gyðingur sem dó í fangabúðunum, en þú getur lesið um það þarna…) ,Mormónisma og svo framvegis og svo framvegis….Hvet þig til að kíkja í heimsókn áður en þú ferð að tjá þig um hindúisma eða eitthvað næst…:) Rangar upplýsingar hjálpa engum en þú hefur greinilega fengið nóg af slíku eins og við flest…
Kær kveðja, og ekki móðgast, bara að benda þér á augljósan sannleika fyrir okkur þessi fáu sem hafa nennt að kynna sér eitthvað þessa þjóð hér…
Og ja, anti-zionista öfgatrúar Gyðingarnir myndu móðgast mikið… Zionista er aftur á móti að finna meðal ótal manna sem ekki eru Gyðingar, og á það við um bæði kristna ,trúlausa,búddista, hægri og vintsti menn,…. til dæmis eru jafn ólíkt fólk og Thatcher, hinn frægi Gorbachev og Bill Clinton öll fjárhagslegir stuðningsmenn zionista samtaka og yfirlýstir zionistar sjálf. Zioinisti er einhver sem finnst Gyðingar eiga rétt á eigin ríki, einhver sem vill að menning þeirra sé virt og svo framvegis, ekki einhver sem trúir einu né neinu endilega, orðið hefur bara ekkert með það að gera….Einn frægasti zionisti allra tíma, skilgreindi sig til dæmis aldrei sem Gyðing fyrr en hann var ofsóttur, þá sá hann að finna varð lausn á öryggismálum Gyðinga og fannst zionismi =eigið land, vera sú raunhæfasta, en landlausir Gyðingar hafa jú verið myrtir hrottalega aftur og aftur eftir árið 2000, og nei, ekki bara Rannsóknarétturinn og Hitler, ofsóknirnar skipta tugum og kannski ekki skrýtið að í dag eru Gyðingar bara smáþjóð að fjölda, 15 milljónir í öllum heiminum, þar af um 6 milljónir í Ísrael og um 6 milljónir í USA og restin er dreifð um heiminn og finnst meira að segja á Indlandi og í Írak, þó fjölmennasti hópurinn utan USA og Ísrael búi í Frakklandi, þar sem miklar ofsóknir hafa verið undanfarið…
Skemmtu þér í fríinu!
Thule Sól.