Hér kemur sama fréttin frá tveimur miðlum þ-e Mbl.is & Visi.is
Eitthvað hafa staðreyndir skolast til …en hvor ætli hafi rétt fyrir sér? :)
MBL.is
Belgi skaut hjón frá Marokkó til bana
Eldri maður er sagður hafa skotið hjón frá Marokkó og sært tvö börn þeirra í Brüssel í Belgíu í nótt. Þá mun maðurinn hafa lagt eld að íbúð hjónanna, sem voru nágrannar hans. Annar nágranni særðist einnig í árásinni, en lögregla skaut árásarmanninn til bana.
Lögregla segir að Hendrik Vyt, sem var 79 ára, hafi skotið fólkið, sem voru nágrannar hans, til bana og sært tvö af fimm börnum þeirra, þar af eitt alvarlega, í Schaerbeek. Þegar lögreglu bar að garði var Vyt í íbúð sinni og skaut út um gluggann. Lögregla svaraði skothríðinni, en Vyt lést af sárum sínum. Slökkviliðsmenn, sem hugðust slökkva eldinn í íbúðinni, eru sagðir hafa fundið hjónin látin og börnin á fyrstu hæð íbúðarinnar. Nágranni fólksins reyndi að koma í veg fyrir árásina en fékk skot í fótlegginn. Vyt var dæmdur ofbeldismaður og þekktur fyrir andúð sína á innflytjendum.
Visir.is
79 ára maður myrti tvo í Belgíu
79 ára gamall maður myrti tvo og særði fjóra til viðbótar í Belgíu í dag. Maðurinn, sem er þekktur fyrir ofbeldi og skoðanir sínar gagnvart innflytjendum, lenti í rifrildi við tvo nágranna sína sem eru frá Marokkó. Dró hann skyndilega upp byssu og skaut parið.
Því næst fór hann upp í íbúð sína og hóf skothríð á gangandi vegfarendur. Maðurinn kveikti síðan í íbúð sinni á meðan hann var enn þar inni. Er lögreglan fór inn í íbúðina var maðurinn látinn.
Tvö börn parsins sem maðurinn myrti hlutu brunasár og voru flutt á sjúkrahús.
Bara varð að senda þetta inn :)
Kv,
Ingi
www.facebook.com/teikningi