Ok ég veit að það er ekkert sniðugt að vera með copy paste en ég geri það nú samt í þetta skipti.
Ég var bara að spá í hvort að þeir komist upp með svona vitleisu.
Hvað með alla þá sem nota tölvurnar sínar sem græjur og eiga kannski ekki geislaspilara nema í tölvunni eiga þeir semsagt ekki að fá að hlusta á music nema þá kannski einhvað piratdót sem þeir verða að kaupa annarsstaðar eða verða sér útum af því að þeir geta ekki lengur verslað sér geisladísk útí búð ?
Tekið af http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=795544
Skífan ætlar að læsa öllum geisladiskum.
Til að bregðast við minnkandi sölu, sem fyrirtækið telur að stafi einna helst af síaukinni ólöglegri fjölföldun á tónlist, hyggst plötufyrirtækið Skífan læsa geisladiskum sem það gefur út svo að ekki sé hægt að spila þá í tölvum og þá ekki hægt að afrita þá. Einnig hyggst Skífan lækka verð á nýjum og nýlegum geisladiskum um allt að 9%.
Í sameiginlegri tilkynningu aðstandenda Norðurljósa, sem eiga Skífuna, fulltrúa Samtaka flytjenda og hljómplötuframleiðenda og Samtaka tónskálda og eigenda flutningsréttar kemur fram að þetta sé gert til að bregðast við síaukinni ólöglegri fjölföldun, en í tilkynningunni kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá alþjóðasamtökum hljómplötufyrirtækja sé einn diskur brenndur fyrir hvern disk sem seldur er.
Í tilkynningunni segir og að gengisþróun íslensku krónunnar síðustu vikur hafi veitt ákveðið svigrúm til verðlækkunar, en auk þess vilji fyrirtækið leggja sitt af mörkum til að sporna gegn verðbólgu. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hyggjast aðrar íslenskar útgáfur hafa sama háttinn á og þannig verða útgáfur Smekkleysu varðar á sama hátt og einnig stefnir Edda útgáfa & miðlun að því að læsa sínum útgáfudiskum.