Ég ákvað að fylgja þessari grein minni sem ég skrifaði um að tóbak væri ekki skaðlegt, en áður en ég byrja vil ég biðjast afsökunar til allra sem þekkja einhvern sem hefur (líklega) dáið úr reykingum eða eru með krabbamein. Ég vil einnig segja að þessi grein er ekki jákvæð gagnvart tóbaki (þar sem ég vil helst ekki brjóta lög) heldur segir hún aðeins frá staðreyndum.

Auðvitað benda flestar líkur að því að reykingar valda krabbameini, en það er ekki hægt að vera viss án vafa með allar sannanir skotheldar um að reykingar valdi krabbameini. Nokkrar þúsundir eiturefna eru í hverri sígarettu og er það almenn vitneskja, en samt falla fleiri og fleiri í þá meintu “gildru” að byrja að reykja með fullri og heilum huga þrátt fyrir alla þessa fyrirlestra og forvarnir. Það er góð ástæða fyrir því, flestir byrja að reykja undir 18 ára aldri, af því að það er “cool” og “forboðið”, þá meina ég með forboðið að þeir vita að þeir eru að gera eitthvað sem þeir mega ekki (svipað og ég að stela nammi frá mömmu og pabba) og æsir það krakkana upp, en ég vil taka það fram að það er ekki eina ástæðan og fáránlegt að nota þessa einu ástæðu við rökstuðning af hverju krakkar reykja.

Réttarhöld
Eins og ég sagði í fyrri greininni er engin pottþétt og bein sönnun fyrir neyslu tóbaks og saksóknari verður að fá samróma dóm frá kviðdómnum til að vinna og má enginn vafi leika þar á. Það er einmitt það, þeir hafa ekki getað sannað án vafa að reykingar drepi, og að segja að tóbaksframleiðendur hafi mútað einhverjum, dómara eða saksóknara eins og “Grugli” skrifaði og eru svona ásakanir algjörlega ósannaðar og eru ærumeiðingar og meiðyrði og er það ólöglegt. En varðandi ásakanir um það að reykingar valdi krabbameini, eru ekki fullsannaðar og því gróflega talið ekki satt, það er ekki hægt að sanna að krabbameinið hafi ekki komið af mikilli nálægð við- rafmagn, -asbest, -skordýraeitur o.s.frv.

já og “cruxton” ég efa að læknir afa míns hafi ekki viljað sært hann og leynt honum að hann væri með krabbamein, komdu allavegana með alvöru ásakanir sem standast einhver rök, dipshit