“Hryðjuverkamennirnir” flugu vélunum á WTC.
Engin þjóð hafði lýst stríði yfir BNA , hinsvegar samtök sem eru meðal annars þekkt “hryðjuverkasamtök” greinilega því BNA virðist vita svona mikið um þau.
Já japanir réðust fyrirvaralaust á BNA , þegar það geisaði heimstyrjöld og á HERNAÐARLEG markmið, herinn á ALLTAF ÆTIÐ að vera í viðbragðstöðu vegna þess að svona hlutir geta komið fyrir , hversu rangir sem þeir eru. Réttlætir það mannslátrum á saklausum ?
Ég sagði aldrei að BNA hefðu ekki átt að veita Japönum náðarhöggið, en að gera það VILJANDI á kostnað nokkurn hundruð þúsund saklausra borgara er EKKI rétta leiðin.
“Tojo var í augum almennings í BNA, sekur að dauða, allra þeirra BNA manna sem féllu í WWII(í Kyrrahafinu) Það var óhugsandi að hann slyppi.”
Okey kannski í huga á einhverjum “hryðjuverkamanni” þá var það bandaríkjamönnum að kenna að nákominn aðili hans dó, það þýðir EKKI að hvaða BNA maður sem er sé réttdræpur svo lengi sem honum tækist að ná bush i leiðinni því þetta var honum að kenna , hann stjórnaði. Maður þarf að draga línuna einhversstaðar.
Ég get sett mig í spor þeirra, það eru bandaríkjamenn sem geta ekki sett sig í spor annarra þegar borðinu er snúið við.
Þú ert að snúa svo alveg útúr þessu með að auglýsa í mogganum. Það er stór munur á því að einhver óþekktur geri svona og að heimsþekkt “hryðjuverkasamtök” geri svona.
Bíddu eru hryðjuverkamenn ekki MENNSKIR menn og ójafnir öðrum , það eru engir SMÁ fordómar sem þú hefur. Ég trúi ekki að þú þykist vera hæfur til að dæma þetta fólk. Þetta er fólk sem á næstum ekkert , búið að vera kúgað, fjölskyldur þeirra myrtar, dáið úr hungri, lifað borgarstyrjaldir, langflestir kallaðir í stríðið 16 eða 18 ára. Ef þú tekur 6 ára strák , sýnir honum hryllingsmyndir í 10 ár finnst þér þá skrítið ef hann verður ofbeldishneigður og með brenglaðar hugmyndir, gerir það hann réttdræpan ?
Ég sagði aldrei að hryðjuverkamenn væri rétthærri.
Okey í WTC dóu um saklausir 7000 manns , frá 100 mismunandi löndum.
Nagasaki og Hiroshima dóu um 300þúsund saklausir manns.
Vietnam drápu BNA menn yfir 15.000 saklaust fólk(af því best er að ég veit)
BNA er búið að fara uppí talið er 10.000 manns í þessum “hryjðuverkaeltingarleik” hvað ætli mikið af ÞEIM hafi verið saklausir.
Ég hef engan áhuga á því að kynnast ættingjum þeirra sem dóu í WTC , það hefur ekkert uppá sig því ég get ekki breytt því sem nú þegar hefur orðið.
Finnst þér það skrítið ? BNA VALTAR inní þessu lönd sprengjir þau í klessu og sendir hermenn og í þessu farast nokkur þúsund saklausir manns , svo þegar einhver BLAÐAMAÐUR frá BNA er nógu HEIMSKUR til að fara þangað og er drepinn þá finnst þér þess virði að minnast á ÞAÐ.
Ef þetta er svona MINNA fólk en við , afhverju erum við ekki að HJÁLPA því frekar heldur en að drepa það , ég veit ekki betur heldur en flest lög í heiminum telji ALLA JAFNA, þar er að vísu undantekning við glæpamenn, en DÆMDA glæpamenn.
Ég er ekki að réttlæta morð á saklausum borgurum, ég er bara að segja ef TVÖ lönd fara í stríð og annað þeirra leggur sig fram við að slátra saklausi fólki, finnst þér það þá skrítið að hitt landið geri það sama ?
frjals
“ef TVÖ lönd fara í stríð”
En þetta er einmitt mergurinn málsins.
Hryðjuverkamennirnir eru EKKI þjóð.
Þeir eru samtök, félagsskapur eða jafnvel bara einn maður.
Svo ef einhver þeirra segir BNA stríð á hendur, hvort sem það er gert í nafni félagsins, samtakanna eða bara í nafni þess eina, verður þá að taka allt það alvarlega? Ná þeim strax sem slíkt gera?
Eða bara bíða og vona að hótunin sé innantóm. Hvort er skynsamlegra?
Það berast óteljandi hótanir ínn á borð hjá BNA.
Auglýsingin sem ég nefndi, sem líkingu, er í fullu gildi.
Svo aftur sé snúið að Hiroshima og Nagasaki.
Þú fordæmir þær sprengjur. Það geri ég líka.
EN ef ÞÚ þarft að velja um dauða hundruð þúsunda af óvinum þjóðar þinnar og dauða tugþúsunda af eigin fólki(hermenn eru líka fólk, kvaddir í herinn) hvort mynduru velja? Hvorugt er gott val.
En þú átt skyldum að gegna við þegna þína, ekki óvininn. Ræður það ekki úrslitum við ákvörðunartöku þína?
Og ekki má gleyma, að líklega hefðu ekki dáið færri Japanir í ‘hefðbundnum’ hernaði, ef BNA hefði þurft að berjast á ‘megineyjum’ Japans.
Það hafði sýnt sig á Okinawa.
Ég segi það enn aftur. Kynntu þér ALLAR þær forsendur sem BNA hafði til að taka þessa ákvörðun!
Ekki bara vera dómharður úr sófaum heima, ÁN þess að vita málsatriðin. Þetta er það sama og dæma einhvern sekan án réttarhalda.
PS. Svo skaltu vera hófsamur á tölunotkun. Þessar tölur sem þú notar eru sjaldnast þær sömu á milli greina. T.d. WTC Þar eru nú u.þ.b. 3000 álitnir dánir. Og í Vietnam. Þar misstu BNA 75000 manns, en voru örugglega ábyrgir fyrir dauða mun fleiri en 15000 manns.
0
Er sonur hans líka að kenna ykkur …? :) hvað er hann eila gamall ?..
og *hóst* : fara varlega í að tala um kennara á netinu, elskan !
þú veist hvað ég meiiiina…!
0
Ekkert:
Hryðjuverkamenn eru ekki þjóð, þeir tilheyra þjóð.
Samtök já , hey VIÐ bönnuðum vítisenglum að koma til íslands. Af því okkur er illa við samtökin en EKKI þjóðerni þeirra.
Veistu það að ef þú emailar hótun til bandaríkjaforseta þá er þér meinaður aðgangur af BNA til æviloka ? Mér sýnist þeir taka það lítillegasta mjög alvarlega. NEMA þegar FRÆG HRYÐJUVERKASAMTÖK hóta einhverju, finnst þér þetta skína af SKYNSEMI ?
Það er allt fínt og gott með að BNA skuli vera ná hryðjuverkamönnum, málið er einfaldlega að þeir eru að lumbra á SAKLAUSU fólki og allir líta undan. Þeir eru búnir núna að reyna í hálft ár liggur við og eru ekki búnir að finna manninn sem er að þeir telja endanlega sekur.
Þetta með Hiroshima og Nagasaki. BNA gerðu það alveg kristaltært að þegar það er stríð er saklaust fólk líka skotmark.
Svo núna þegar “hryðjuverkasamtök” lýsa stríði yfir BNA og drepa þeirra saklausa fólk þá er það HRYÐJUVERK því það henntar BNA að segja það.
Svo fara þeir að elta uppi þessa “hryðjuverkamenn” og drepa fleiri saklausa heldur en var drepið hjá þeim.
Endilega segðu mér HVAÐ margir saklausir þurfa að deyja útaf því að 3000 saklausir BNA menn/konur dóu ?
Ef maður gerir ekki greinamun á hermönnum og saklausu fólki þá GETUR MAÐUR EKKI VERIÐ AÐ SETJA ÚTA að fólk geri ekki greinamun á því þegar einhver saklaus sem er náinn manni deyr.
Ég þarf ekki að KYNNA mér öll málsátriðin varðandi nagasaki og hiroshima, BNA slátruðu 300.000 saklausum manns, það breytist ekkert sama hvað ég les.
Varð. tölunotkun þá átti þetta 7000 að vera 3000 , mín mistök. Í vietnam dóu yfir 15.000 SAKLAUSIR manns. Ég veit nú ekki hvað BNA missti marga í vietnam , en undir endann á því stríði þá var þetta ríflega 1 BNA á móti 100 Viet-Kong
0
“BNA gerðu það alveg kristaltært að þegar það er stríð er saklaust fólk líka skotmark.”
Bandaríkjamenn voru nú engir frumkvöðlar á þessu sviði. Saklaust fólk er búið að vera fórnarlömb í stríðum síðan fólk fór að fara í stríð. Ef ekki gripdeildir, nauðganir og þrælahald, þá var það hungursneyð; ef ekki hungursneyð, þá voru það drepsóttir - sérstaklega þegar borgir tóku að myndast og menn áttuðu sig á því, að skárra væri að sitja um borg í nokkra mánuði, fleygja saur og öðru álíka inní borgina og láta náttúruna sjá um afganginn, heldur en að gera endalaus áhlaup.
0
Það er mikið rétt hjá þér.
Mér finnst það bara vera örlítið gróft hjá BNA að drepa saklaust fólk og segja svo “Hey það er stríð , sorry þetta má”.
Svo þegar einhver drepur saklaust fólk hjá þeim þá “flokkum þetta undir hryðjuverk því þá megum við hefna okkur 10 sinnum verr”
0
frjals
Þeir tilheyra ekki einni þjóð, né þjóðarbroti.
Þeir tilheyra mörgum þjóðum.
Ekki hægt að segja með vissu, hversu margir saklausir þurfa að deyja, en þeir deyja oftast uns markmiði annars er náð.
Ok þú þarf ekki að kynna þér Nagasaki og Hiroshima.
þú veist allt um það hve margir dóu..en veistu nokkur um orsökina??? Orsökina sem leiddi til að sprengjunum var varpað?
Og í sambandi við tölur. Þá létust u.þ.b. 75000 BNA menn í Vietnam. Það er opinbera talan, og nöfn þeirre eru meitluð í vegg í Washington.
Og eftir formúlu þinni var 100 Vietkong á móti 1 Bna manni.
Það gera því 7.500.000 Vietkong! Sjö og hálf milljón!
Það er sem ég sagði, farðu varlega með tölur, þú sýnilega veldur þeim ekki.
All is well as ends Better. The Gaffer.
0