Þriðjungur gyðinga í Evrópu var myrtur í Seinni Heimstyrjöldinni.Hvað átti að gera við þá sem eftir voru?Gyðingar fundu fyrir því sem aldrei fyrr að þeir hafa alltaf búið við minna öryggi en flestar þjóðir heims.Allar þessar aldir höfðu hinir oft ofsóttu og heimalandslausu gyðingar talað við börn sín um þann dag sem þeir yrðu loks öryggir á ný í eigin landi en nær allur heimurinn hló að þessari fáránlegu hugmynd að þessi einstaka,undarlega þjóð myndi snúa einhvert aftur eftir þúsundir ára.Eftir þessi hræðilegu morð á þessari öld var heimsbyggðin var orðin harmi sleginn yfir þessum óumræðanlegu hörmungum og menn fóru að sjá hversu verulega öryggi gyðinga í þessum heimi er,og hefur löngum verið,ábótavant.Þess vegna ákvað hinn Vestræni heimur að veita gyðingum þessa ósk sína,sem hafði áður verið lítið annað en aðhlátursefni flestum öðrum en þeim sjálfum.Það er satt að það er auðveldara að ræna og jafnvel myrða heimilislausan mann sem býr úti á götu óvarinn í kuldanum en mann sem býr bak við luktar dyr í sínu eigin húsi og glæpamenn hafa því ekki eins greiðan aðgang að á næturlagi.Þannig hugsuðu sumir að öryggi gyðinga yrði kannski aldrei tryggt nema þeir eignuðust loksins sitt eigið þak yfir höfuðið,en væru ekki bara ein lítil heimilslaus þjóð út á götum heimsins sem alls konar illmenni hefðu greiðan aðgang að skaða.Niðurstaða helfararinnar var jú að þessi þjóð er greinilega alls ekki örugg og heimurinn reyndi að finna einhver ráð til að bæta úr því.Það vill gleymast,eins og flest vill gleymast,þegar talað er um Ísrael-Palestínu,að þetta öryggisvandamál er ennþá til staðar og oft verður umræðan ansi einhliða þegar rætt er um þjáningar Palestínu,og það gleymist að alls ekkert allir gyðingarnir sem búa í Ísrael grátbáðu um að fá að vera þar…En hvert áttu þeir að fara eftir allar hörmungarnar?Þetta er það sem heimsveldin stungu upp á,frekar en axla almennilega ábyrgð á þeim sjálf….
Gyðingar eru um 15.000.000 manns.Þá tel ég alla gyðinga í heiminum með,í Ísrael sem annars staðar.Sem sagt,gyðingaþjóðin, dreifð um heimsbyggðina, er smáþjóð,ekki mikið fjölmennari en Svíþjóð.Og þeir hafa löngum verið svona fámennir,enda var aldrei nein stór eftirspurn eftir því að fá að tilheyra þeirri litlu þjóð jarðarinnar sem hefur þurft að líða mestar ofsóknir allra þjóða gegnum aldirnar,og margir hafa einfaldlega sagt bless við hana,og fáir bæst í hópinn.Þeir þurfa einnig að glíma við alls konar lygasögur eins og að samfélag þeirra hafa eitthvað með rasisma að gera.Þetta er bull og vitleysa,til dæmis teljast mega-gyðingurinn hin ljóshærða Gweneth Paltrow(hvernig sem það er nú skrifað),komin af miklum rabbíaættum og á tvo rabbía afa,hin einstaklega norræna Alicia Silverstone,og Whoppi Goldberg,kolbikasvört konan,allar vera gyðingar frá fæðingu.Þetta sýnir að gyðingar eru varla allir beinlínis ættaðir frá Ísrael,þó hugmyndin af þjóð þeirra,og þar með hún sjálf sem slík,sé þaðan,en það nákvæmlega hvernig gyðingar skilgreina þjóð sína er forvitnilegt og fremur óvenjulegt í sjálfu sér.
Sem sagt þetta er um 15.000.000 manna þjóð,og um þriðjungur hennar býr í dag í Ísrael.Það var einmitt þriðjungur af Evrópskum gyðingum sem var myrtur í stríðinu hræðilega.Hver ætlar að segja mér að hann viti fyrir víst að þessi þriðjungur sé eitthvað öruggari en sá sem eitt sinn var myrtur?Ég er alls ekki að segja að ég viti eitthvað hver besta lausnin er.Eitt er víst að gyðingar eru ekki öruggir í Ísrael,smáþjóð alein á báti,umkringd óvinveittum þjóðum sem telja milljarða.En eru þeir eitthvað öruggari annars staðar?Það er bara eitt víst með þessa þjóð.Hún er ekki fjölmenn og hún er utangarðsmaður í heiminum.Hún hefur þurft að líða miklar hörmungar og hún er enn hrædd um öryggi sitt.
Ég óska þess að einhvernveginn verði hægt að tryggja öryggi gyðinga raunverulega,án þess að það sé á kostnað einhvers annars og að umbætur verði innan arabaheimsins svo að hin forna vinátta gyðinga og araba geti risið úr rústum á ný…Það voru hvorki gyðingar né arabar sem rústuðu þeirri vináttu höll…Spurning hver muni endurbyggja hana,hvenær,hvar og hvernig í ósköpunum…Það er samt alls ekkert ótrúlegra en að gyðingarnir,aðhlátursefni þjóðanna fyrir allar sínar furðusögur, skuli raunverulega hafa snúið aftur til Ísrael eftir ótal,ótal,ótal,ótal,ótal aldir…En þetta verður víst allt saman þennan dag sem okkur dreymir öll um þegar allir menn verða vinir,og geta komið sér saman án þess að það byggi á kröfunni um að allir verði að verða eins,að við verðum á einhvern hátt algjörlega ein þjóð því það verður líklega aldrei,og varla eftirsjá af því þar sem fjölbreytnin er fallegur þáttur í menningu heimsins sem slík.Vonandi lærir fólkið í Ísrael-Palestínu að það er hægt að vera vinir án þess að vera alveg eins,og það þarf alls ekki að vera minna djúp vinátta sem ríkir meðal ólíkra einstaklinga.Það sem ég vil segja við fólk sem er mikið að tjá sig um þessi mál er fyrst og fremst þetta.Mundu alltaf að þú veist ekki allt og skilur ekki allt,ekki blöðin heldur.Lausnin felst ekki í því að úthúða einum eða neinum,eins og margir virðast festast í,hvort sem fórnarlambið er Ísrael eða Palestína.
Ísland er umlukið hafi á alla vegu.Friðsamari nágranni er ekki til.Litla þjóðin Ísrael er umlukin óvild á alla vegu og við vitum ekkert hvernig við yrðum ef við ættum þeirra hræðilegu hörmungasögu og hræðslu og byggjum við þessar sömu kringumstæður.Hins vegar gæti enginn nokkurn tíma tekið sum meðöl ef ekki hefðu verið til gyðingar,bara svona sem dæmi,svo hver veit kannski við værum ekki eins mörg án þeirra,lifðum alla vega ekki eins lengi.Þeir hafa alls ekki gert heiminum minna gagn en aðrar þjóðir,þrátt fyrir fámenni og við skuldum þeim að minnsta kosti það að trúa að þeir geti bætt sig,og ef við ætlum að flýta fyrir því á einhvern hátt,tryggja þá öryggi þessarar litlu þjóðar í leiðinni.En þetta er allt saman flókið mál….Óþarfi að einfalda það á óviðeigandi hátt og halda því fram að þetta fólk sé þarna í Ísrael allt saman út af því að Biblían segji að þeir eigi landið,eins og ég hef séð fólk halda fram hér.Trúleysi er kannski hvergi algengari skoðun í heiminum en meðal gyðinga í Ísrael.Þeir eru þarna vegna þeirrar miklu hörmungarsögu sem þeir eiga sér og heimurinn reyndi með þessu móti,hvort sem það var vanhugsað eða ekki,að tryggja að ætti sér ekki biturt framhald.Varðandi það að sniðganga vörur frá Ísrael,þá telst Ísrael nú ekki til ríkustu landa heimsins,enda eru alls ekki allir gyðingar einhver Bill Gates eins og sumir smákrakkar sem trúa hvaða kjaftæði sem er halda.Auðskipting er hins vegar jafnari meðal gyðinga en til dæmis meðal araba og það er gert talsvert til að koma til móts við ótal fátæka gyðinga sem flytja til Ísrael,en það hafa tildæmis nýlega verið Rússneskir gyðingar að streyma til Ísrael vegna ofsókna í Rússlandi og reyndar víðar í Austur- Evrópu.Sumum finnst sem sé enn þörf á því fyrir gyðinga að eiga einhvers konar griðastað,enda flytja sumir þessir Rússar til Ísrael einfaldlega vegna þess að þeim finnst þeir ,þrátt fyrir allt, öruggari þar,sem sýnir að vissulega eru enn í dag ofsóknir gegn gyðingum víða um heim.Það má líka taka það fram að ótal arabalönd sniðganga vörur frá Ísrael nú þegar,og er gyðingum jafnvel bannað að ferðast til flestra arabalandanna,jafnvel Bandarískum gyðingum og helst öllum gyðingum.Það er kannski ekki mjög vinsamlegt og sýnir að fleiri en gyðingar þurfa að taka sig á þó þeir þurfi þess vissulega einnig.Ef þið viljið endilega taka þátt í viðskiptabanninu með Írak og co,verði ykkur bara að góðu,skemmtið ykkur þá bara með Hussein gamla,en ég get sagt ykkur það að besta greip í heimi er frá Ísrael:)Fólk er alveg hætt að bera virðingu fyrir gæðum og er farið að versla eftir einhverri pólítík endalaust.Persónulega er ég á móti viðskiptabanni á Ísrael,og reyndar viðskiptabanni á Írak líka.Frelsið lifi.