Já,þetta er flókið mál.
Bara smá athugasemd.
Ég kann hrikalega illa við þetta “hvíti maðurinn” þetta og hitt tal.Við hér á Norðurslóðum höfum nú aðallega verið í því að drepa hvort annað,svo það væri kannski nær að vera nákvæmur og tala til dæmis um Breta.Ég held að þessi ímyndaða vera hvíti maðurinn sé ekki að gera neinum gott,og það er óþarfi að við sem vitum betur séum að nota orðið svona.
Svartir þrælar í Noregi?
Indjánadráp Íslendinga?
Hinn morðóði og grimmi Leifur Eiríksson!
Misnotkun Dalvíkinga,Færeyinga á þriðja heims þjóðum með dyggri aðstoð Svíþjóðar!
Húnvetningar nota ódýrt vinnuafl í Kína til vopnaframleiðslu!!
Hljómar allt mjög kunnuglega ekki satt?LOL.
Ég segji öllum sem byrja á hvíta manns kjaftæðinu við mig,já þannig fólk er til þó sem betur fer séu fáir svona heimskir, að ég tilheyri nú fólki sem hefur einu sinni her,og flestar nágranna þjóðir mínar,fyrir utan kannski Englendingar og Þjóðverja,sem eru nú ekki beint mjög nálægir nágrannar,hafi einfaldlega ekki haft áhuga á að misnota aðra en hvorn annan,svona eins og gengur og gerist meðal ættbálkanna í Afríku,öldum saman.
Mér finnst alls ekki að fólk ætti að nota þetta fáránlega orð “hvíti maðurinn” í svona neikvæðu samhengi,og í raun er óþarfi að nota slíkt orð mikið yfirhöfuð,eins og einhverjir grey rapparar sem nenna ekki að vera með nákvæmari lýsingar á nákvæmlega hvaða hvíti maður þetta var.Hmmm,Íslendingar bönnuðu víst þrælahald það,sem lengi tíðkaðist í Afríku þó það hafi reyndar verið meira “vinnumenn” en þrælar,svipað má reyndar segja um þræla hér í þeim skilningi minnsta kosti að ekki eru stórlegar heimildir um að menn hafi fátt annað gert en dunda sér við að berja þræla sína og spotta dag og nótt eins og sú mynd sem gefin er að Amerísku þrælahaldi,ég er samt ekki að afsaka margt í fortíðinni hér á Íslandi en halló!
Finnst þér virkilega eitthvað rétt að þú sért eitthvað að samsama þig þessum hvíta manni?Auðvitað ekki,síðan hvenær drap Leifur Eiríksson hundrað indjána?Höfðu lang amma þín og afi fullt af svörtum þrælum upp í Rangárvalla sýslu sem þau lömdu dag og nótt?
Mér finnst þessi notkun þessa alltof víðtæka orðs hvíti maðurinn bjóða heim misskilningi og hundleiðinlegu stagli,enda kemur þessi “hvíti maður” mér greinilega ekkert við,nema svona sem hluti af mannkyninu,og ég á svo sem ekkert mikið meira sameiginlegt með honum en Írökum.Við ættum að hætta að nota þetta orð svona,það er eitthvað svo fáránlegt.Auk þess eru til raunverulegir hættulegir fordómar gagnvart hvítu fólki rétt eins og svörtu fólki,aröbum eða gyðingum.Í seinni heimstyrjöldinni var stöðugt staglast á orðinu “gyðingur”,og það má vel vera að einhverjir einn eða tveir gyðingar hafi misnotað aðra og blekkt,en það var ekkert verið að einbeita sér að því að refsa þeim sérstaklega,nei þetta víðtæka orð var stöðugt notað og nú í dag eru gyðingahatarar jafn heimskir afþví þeim er oft jafn meinilla við arabískan gyðing sem býr til dæmis í Íran og hefur búið þar eins og forfeður sínir öldum saman og stundað búskap,eins og þeim er við einhverja ríka kalla í Bandaríkjunum sem eiga að vera svo ógurlegir,sem er nú ósennilegt þó líklega finnist glæpamenn meðal gyðinga rétt eins og annars fólks.En nei,gyðingahatarar hata alla gyðinga,maðurinn er hættulegur afþví hann er gyðingur.
Það er til fólk sem hefur gleypt svo við svona tuggum að vegna þess að “svertingjar bera ábyrgð á flestum glæpum í Bandaríkjunum” eða álíka sögusagna,er svartur læknissonur á leið heim frá kirkju,sem safnar frímerkjum er er í skátunum eða eitthvað álíka meinlaust,og hefur aðallega séð glæpi í sjónvarpinu eins og aðrir,í raunverulegri lífshættu út af svona biluðu fólki.
Arabi sem vinnur hjá Rauða Krossinum gæti verið í hættu út af einhverjum geðsjúkling sem vill koma í veg fyrir frekari hryðjuverka árásir,enda var ráðist á jafnvel börn araba eftir árásina í New York.
Alls konar hvítir menn hafa verið drepnir,og þó við séum vonandi í engri stórhættu þá er alveg óþarfi að hjálpa öðrum við að koma sér upp stereótýpu af okkur með ofnotkun þessara orða “hvíti maðurinn” þegar talað er um glæpi lítils hluta hvíta mannsins gegn mönnum af öðrum kynþáttum,já mörg okkar höfðu einfaldlega aldrei neitt með það að gera,sem er umræðu vert a.m.k.,hvað þá forfeður okkar og þetta gildir um heilu löndin!Það var fyrir alls ekki löngun verið að drepa hvíta bændur í Afríku,og er það hræðilegt og sýnir hvað þetta hatur er orðið djúpt.Heimskt eða bilað fólk færir oft þannig hatur yfir á mun stærri hóp manna en æskilegt er,
eða nokkur rök hægt að færa fyrir.Það væri þess vegna kannski allt í lagi,að við sem vitum betur,vörumst að ofnota þessi orð,með því að tala stöðugt um þennan “hvíta mann”,og bjóða þannig upp á þá mistúlkun að hvítir menn séu í sjálfu sér einhver ógn eða hætta eða sem heild samábyrgir fyrir einu eða neinu,enda innifelur þessi hópur okkur sjálf,og eflaust a.m.k. mörg,jafnvel flest barnabarna okkar,fer eftir hvernig maður vill flokka þetta og hver veit,einhver sem væri orðinn nógu heimskur í hatri sínu gæti farið að drepa einhvern fyrir að hafa átt hvíta ömmu,eins og nasistarnir skyldu hvað gyðingur væri,og Halle Berre fengi skuggaleg augnaráð á götum úti frá þeim allra brjáluðustu fyrir að vera ekki nógu dökk.Ég veit að þetta gerist líklega aldrei,ja vonandi,en afhverju ekki að sýna smá fyrirhyggjusemi og hætta einfaldlega að taka þátt í hvíta manns rausinu með einhverjum rappörum.Þrælahald var nú einu sinni afnumið hér fyrir krisnitöku,þó því miður hafi margir samt farið illa með aðra,en ekkert verr en víðast í Afríku og Asíu samt.Við ættum líka að sjálfsögðu að endurskoða hvernig við flokkum annað fólk í of breiðar og ósamstæðar fylkingar og reyna að koma í veg fyrir svona misskilning.Mjög margir varast það einmitt,en gleyma “sjálfum sér” og halda áfram hvíta manns rausinu“.Ég hef því miður gert þetta sjálf einhverntíman held ég,en vegna alls þessa óhuggulega haturs sem er í gangi í heiminum þá kæri ég mig ekki um það.Osama bin Laden notaði til dæmis þetta orð hvítur,og ég veit ekki hverju hann var að ýja að,vonandi engu en allur er varinn góður.Ekki ætla ég að hjálpa svona fólki,eða láta það dirfast að afskrifa mig sem einhvern ”hvítan mann“,það er Kristófer Kólumbus,Cortes og alla þá,nú og krossfarana auðvitað.Svoleiðis fólk er því miður til og kann ekki að nota orð eins og ”Hollendingur“,”Norðmaður“,ja eða að minnsta kosti ”kaþólikki",þó það sé nú líka hættulegt.Það notar þessi orð kannski,en þeim dettur virkilega í hug að þau komi mér eitthvað frekar við en einhverri stelpu í Asíu.Annars er erfitt að vita hvar maður á að draga mörkin.Þetta er bara svona smá pæling.