Rasistar nokkrir á Englandi settu upp æfingabúðir í Langley Mill í Nottingham. Rasistarnir höfðu hópað sig saman á þetta svæði og skemmtu sér þar meðal annars með því að drekka, borða og fleira og eftir það var nú bara farið að æfa hvernig á beita sprengjum á sem bestan hátt!

Aðal markmið rasistana var að þjálfa fólk til þess að það gæti framið meira og öflugra ofbeldi en áður með þessum ógnarráðum og var þeim sérstaklega sagt að þetta ofbeldi ætti að beinast gegn Englendingum af Afrískum eða Asískum uppruna.

Upp komst um rasistana þegar sjónvarpsstöðin Channel 4 kom upp földum myndavélum og fylgdist með einni kvöldstund hjá þeim. Channel 4 hafði uppljóstrara innan rasista samtakana sem upplýsti glæpahringinn.

Ofbeldi og aftur ofbeldi er það sem þessir menn nærast á og er nú áróðurinn sem þessir hópar halda uppi á netinu orðinn það mikill að ráðstefna var haldinn hér á Íslandi þetta kvöld, að mér skildist af fréttum á stöð 2. Árásir gegn lituðum hafa aukist gríðarlega á undanförnum árum og sérstaklega í Bandaríkjunum eftir árásirnar 11 September en eftir þær hafa margir múslimar verið drepnir vegna rasisma.

Það má ekki láta ofbeldi ná tökum á landinu eins og gerst hefur með ofbeldi ný-nasista í Þýskalandi en þar hafa margir verið myrtir af rasistum á undanförnum árum. Það að rasistarnir séu orðnir svona vel skipulagðir gefur aðeins til kynna að vernda þarf litað fólk af hálfu lögreglu þar sem þetta fólk virðist hvergi vera orðið óhullt lengur í Evrópu og nú nýlega var litaður maður myrtur í Þýskalandi.

Leita þar allra ráða til þess að brjóta niður og banna þessar hreyfingar enda samræmast skoðanir þeirra ekki grundvallarreglum lýðræðisins sem við lifum í. Ofbeldishreyfingar sem þessar eru ógn við almannaheill og samfélagið allt!