Druzla,
Þessar lýsingar á meðferð múslimskra karlmanna á konum sínum kunna að vera sannar, EN HÉR ER AÐEINS UM BROTABROT AF MÚSLIMUM að ræða. Það er nú eins og mig minni að sumar íslenskar konur búi einnig við harðræði af íslenskum og kristnum eiginmönnum sínum. Og lýsingarnar sem þú við hefur hér um meðferðina á múslimskum konum eru eins og endursögn á sögum sem heyrst hafa á meðferð sumra íslenskra karlmanna á konum sem þeir hafa “flutt inn” einmitt vegna þess að íslenskar konur (flestar hverjar)láta ekki bjóða sér þá meðferð sem þeir bjóða upp á. Samt eru þessir menn kristnir. Og druzla ef þú segir að kristni sé umburðalynd trú, ættir þú að setjast niður og lesa “hið heilaga rit” Biblíuna spjaldana á milli.
Það þarf ekki að lesa lengi til að finna setningar eins og þessar:
“Hver sá sem bölvar föður sínum eða móður skal líflátinn verða”.
“Þá er einhver drýgir hór með konu náunga síns þá skal líflátinn verða bæði hórkallinn og hórkonan”.
“Og leggjist maður með karlmanni sem kona væri, þá fremja þeir báðir viðurstyggð. Þeir skulu líflátnir verða”.
“Leggjist maður með konu, sem hefir tíðir, og berar blygðan hennar - þá skulu þau bæði verða upprætt úr þjóð sinni”.
“Eigi skal kona ganga í karlmannabúningi og eigi skal karlmaður fara í kvennmannsföt, því að hver sá ,er slíkt gjörir, er Drottni Guði þínum andstyggilegur”.
Þetta er aðeins agnarlítið brot úr kenniriti kristinna manna, eigum við kanski að full KRISTNAST og fara eftir þessu?
Ég hugsa að jafnvel Gunnar í Krossinum, sem kallar nú ekki allt ömmu sína í trúmálum, fengi klíju ef við færum eftir biblíunni bókstaflega.
Vissulega eru til Íslamskir ofsatrúarmenn sem vilja fara eftir Kóraninum í einu og öllu og þar á meðal svipuðum setningum og hér eru tilteknar að framan. Enda er Kóraninn saminn upp úr biblíunni.
Það eru þessir menn sem mest ber á og fjölmiðlar vesturlanda vilja fjalla um, enda meiri söluvara en sólskinssögur af sama svæði. Þetta alhæfum við síðan um alla áhangendur Íslam og þá gjarnan Araba. En ekki eru allir múslimar arabar og ekki eru allir arabar múslimar. Og druzla, að siðir og venjur Islam séu neyddar upp á konur er þvílík fyrra og lýsir engu betur en þinni eigin fáfræði.
Út um alla Evrópu og heiminn allan eru kristnir menn annað veifið að fremja hryðjuverk (hver man ekki Oklahoma), ekki er klifað á því að þeir séu kristnir. Hvernig hefði fréttaflutningurinn af N-Írlandi verið, ef annar aðilin þar, væru Múslimar??????
Oklahoma, ég fullyrði að mörgum kristnum hræsnurum gramdist, að það voru ekki muslimar, heldur þessi fyrirmyndar, KRISTNI bandaríski hermaður, sem framdi það óhæfuverk.
Í gömlu Júgóslavíu voru það kristnir menn, sem hóp nauðguðu kerfisbundið múslimskum konum. Sem betur fer var þetta ekki öfugt, ég má ekki til þess hugsa hvaða áhrif það hefði nú haft á viðkvæmar og kristnar íslenkar sálir, sem gjanrna vilja sjá flísina í auga Islam, en ekki hræsnis-bjálkan sem stendur á kaf í þeirra eigin kristnu smásál.
Það eru einmitt skoðanir eins og þínar druzla, slengt fram af drambi og yfirlæti, sem hafa aflað BNA þeirra óvinsælda í austurlöndum, sem raun ber vitni.
Og að lokum druzla, ef einhverja konu þarf að frelsa, hvernig væri að þú frelsaðir sjálfa þig af fáfræðinni, drambinu og yfirlætinu sem gegnumsýrir greinina þína.
Kveðja Lotti.