Aumingja saklausu Palestínumenn sem vondu Ísraelsmenn fara illa með. Þú mátt þakka fyrir að þeir séu ekki búnir að þurrka út þessa þjóð (ef þjóð má kalla), en þeir hafa hernaðarlegan styrk til þess að gera slíkt á einum degi ef þeir vildu. Sem betur fer kjósa þeir að hafa stakar aðgerðir til þess að verja réttlætanlegt ríki sitt. Þrátt fyrir að saklausir Palestínumenn lenda inn á milli þá eru aðgerðir þeirra fyrst og fremst annað hvort til þess að svara fyrir hryðjuverkaárás eða ráðast gegn Hamas hryðjuverkamönnum. Samkvæmt Ísraelskum lögum er bannað að drepa saklausa viljandi og hafa hermenn lent í fangelsi fyrir slíkt. Á meðan Palestínumenn reyna að drepa saklausa Ísraelsmenn og fagna því í hvert skipti sem það skeður. Senda börnin sín í þjálfunarbúðir þar sem þau ganga um með byssur, stökkva í gegnum eldhringi með grímur og dreymir um að láta lífið í framtíðinni í sjálfsmorðsárásum.
Ísrael var upprunalega ríkið á þessu svæði þanga til Rómverjar hertóku það og ráku burt eða drápu meirihluta gyðinga, ásamt því að auka innflutning á aröbum. Samt sem áður hafa gyðingar aldrei yfirgefið landið sitt algjörlega og verið þar kúgaður minnihluti sem gleymdi aldrei gamla ríki Ísraels. Rómverjar endurskírðu landið og reyndu að losa það við alla gyðinga svo að mannkynið myndi gleyma að nokkurtíman hafi verið þar ríki Ísraelsmanna, sem betur fer tókst það ekki. Fyrir rúmlega öld síðan byrjuðu gyðingar um allan heim smátt og smátt að flytja þangað aftur á löglegan hátt og keyptu meira að segja landssvæði af Palestínumönnum. Meirihluti íbúa Jerúsalems voru orðnir gyðingar í kringum þarseinustu aldarmót, eða löngu áður en Evrópubúar hófu fjöldamorðin á gyðingum eða ráku þá burt (mikill misskilningur að þá hafi þetta allt saman byrjað, innflutningur til Ísraels fór bara á næsta stig). Meira að segja nafnið Palestína þýðir hernámsliðið á hebresku.
Ísraelsmenn samþykktu skiptingu tveggja ríkja á sínum tíma en ekki Palestínumenn. Þrátt fyrir að hafa ekki samþykkt skiptinguna eru Palestínumenn í dag að heimta að Ísraelsmenn dragi til baka landamæri sín. En málið er að Ísraelsmenn hertóku svæðin á stríðstímum og hefur stærð ríkisins spilað mikið inn í afkomu þess frá fjölda arabaríkja sem vilja útrýma því. Ísraelsmenn hafa haft vilja til þess að semja um endanleg landamæri tveggja ríkja og er það meira að segja opinber stefna ríkisstjórnar Olmerts í dag. Því miður hafa villimennirnir í Hamas náð stjórninni í Palestínu sem þýðir að mjög líklega þurfa Ísraelsmenn að ákveða framtíðarlandamærin án samvinnu við Palestínumenn. Þeir hafa margoft sýnt að ef Ísraelsmenn rétta þeim sáttarhönd að þá skera þeir hana af. Brottflutningur Ísraelsmanna frá Gaza hafa svo sannalega sýnt heimsbyggðinni að Palestínumenn eiga ekki skilið að fá einn meter meira af landsvæði, tók þá nokkra daga að rústa svæðinu og gera það að skotpall fyrir Hamas (þrátt fyrir að þau voru ekki einu sinni í stjórn þá).
Ísraelsmenn mega ekki gefa eftir og eiga helst að hafa algjörlega lokuð og endanleg landamæri á næstu árum, ríkjandi villimennska Palestínumanna er ekkert að hverfa á næstunni. Ef Ísraelsmenn væru svo heimskir að skila öllum herteknu svæðunum (sem Evrópubúar í kjánaskap sínum trúa að muni eyða öllu hatri á einu bretti) þá myndi það aðeins hvetja Palestínumenn og ýmis arabaríki til þess að reyna aftur að útrýma Ísrael. Nú þegar er ríkið þeirra pínulítið í samanburð við öll arabaríkin í kring. Því miður sér maður varla neitt annað en Pallywood áróður í fréttunum í Evrópu. Ísraelsmenn fremja stríðsglæpi á meðan Palestínumenn eru bara að berjast fyrir “landinu sínu”, þrátt fyrir að ríki Palestínumanna hefur aldrei verið til og þeir hafi hafnað því tvisvar sinnum að fá viðurkennt ríki. Þú talar um einhliða umfjöllun (þrátt fyrir að maður sér fullt af væli frá Palestínumönnum í fréttunum) en kemur svo með heimildir fyrst og fremst frá aröbum. Hvað er málið með það? Ég skal laga þetta fyrir þig og koma með smá frá gyðingunum… Þorir þú að lesa það? Ég vona að þú prófir það og áttir þig á því að sagan er Ísraelsmönnum í hag þó að fjölmiðlar sýni bara sprengingar og vælandi Palestínumenn vegna þess að það selur.
http://www.jewishvirtuallibrary.org/jsource/myths/#1Svo er hérna myndband sem útskýrir Pallywood áróðurinn sem er seldur vesturlöndum eins og heitar lummur…
http://seconddraft.org/streaming/pallywood.wmv