Herra Hnýsinn og Stóra Mamma

Undarleg er hún þessi umræða um tálbeitur. Nú þykir allt í einu voða sniðugt að nota tálbeitur til að grisja óæskilega menn úr samfélaginu, einkum hugsanlega barnaníðinga og fíkniefnasala. En þá er þess að gæta að sá sem er nappaður af tálbeitu hefur oftastnær ekki framið neinn glæp - hann hefur einfaldlega verið leiddur í gildru. Það er ekki einu sinni hægt að vera viss um að hann hefði gerst sekur um glæpsamlegt athæfi í öðrum tilvikum.

Það er semsé vandkvæðum bundið að dæma menn sem hafa verið gómaðir með slíkum aðferðum - eða varla er vilji til að loka þá inni án dóms og laga?

Eða er kannski nóg að sýna myndir af þeim í fjölmiðlunum?

Það er líka hægt að ganga lengra, beita tálbeitum til að handsama þá sem geyma þjóf innra með sér, umferðarlagabrjóta, já, alls konar fólk sem er ekki fullkomlega heiðarlegt. Með þessu væri smátt og smátt hægt að koma öllu samfélaginu á sakaskrá. Það væri jafnvel hægt að nota tálbeitur til að bjóða stjórnmálamönnum og embættismönnum mútur - til að athuga hvernig þeir eru innrættir.

En auðvitað er þetta ekkert annað en snertur af múgsefjun, rétthugsun sem er orðin pínu ga ga.

— — —

Ég hef verið að lesa fyrir strákinn minn bók um karl sem nefnist Herra Hnýsinn. Ríkið - og sum einkafyrirtæki líka - eru að mörgu leyti farin að líkjast Herra Hnýsnum. Það stendur yfir stórfelld söfnun persónulegra upplýsinga. Við kaupum ekki kaffibolla án þess að það sé skráð, hreyfum okkur ekki á internetinu, sendum ekki tölvupóst, án þess að það sé geymt, förum ekki út úr húsi eða inn í búð án þess að það sé tekið upp á óteljandi myndavélar.

Maður gefur upp kennitölu þegar maður leigir vídeóspólu eða pantar pítsu. Það eru uppi plön um að setja lífsýni í vegabréf. Það er stutt þangað til sérstakir nemar verða settir í bifreiðar til að fylgjast með akstri þeirra.

Ekkert af þessu er beinlínis gert í nafni lögregluríkis. Það er farið fínna í sakirnar. Stóri bróðir er ekki uppglennt auga sem gónir alltaf á mann eins og í vísindaskáldsögunum. Nei, mest af þessu er gert af því þetta er hægt - af því í upplýsingasamfélaginu er auðvelt að safna svona efni. Og þá þykir sjálfsagt að láta einhvern gera það. Þetta er kannski ekki flóknara en svo. Þannig taka tölvurnar völdin. Það er meira að segja til fínt dulnefni yfir þetta - rafræn vöktun.

— — —

Stjórnmálamenn tala oft gegn eftirlitssamfélaginu, en starf þeirra beinist einatt í þveröfuga átt - til meira eftirlits. Stjórnmálin hafa samsamað sig því sem einn kunningi minn nefnir félagsfræðingasamfélagið - það er íslenskun á því sem á ensku er kallað the nanny state eða fóstruþjóðfélagið.

Þetta samfélag telur sig vera velviljað, en er feikilega afskiptasamt. Treystir í rauninni ekki neinum fyrir eigin velferð. Ríkið er stórt foreldri sem á að hugsa fyrir þegna sína, grípa inn í áður en þeir verða sér að voða. Stóri bróðir er kannski frekar stóra mamma. Í þessum anda er til dæmis nýtt frumvarp til æskulýðslaga sem segir að allir þeir sem starfa með ungmennum þurfi að sanna fyrirfram að þeir séu ekki barnaníðingar eða eiturlyfjaneytendur. Hugmyndin er sú að maður sé sekur uns sakleysi sé sannað. Þetta er eiginlega ný útgáfa af erfðasyndinni.

— — —

Hvað er hægt að gera? Best er líklega að fara aldrei að heiman. Nota aldrei kreditkort, tölvu eða farsíma. Þessar græjur eru ekki annað en háþróuð miðunartæki. Það er að sumu leyti áhugaverð lífsafstaða að vera vænisjúkur - en fæst nennum við því almennilega. En þetta er gamla sagan - just because you're paranoid doesn't mean they aren´t out to get you.

Þótt maður sé ofsóknarbrjálaður þýðir það ekki að þeir ætli ekki að negla mann.

Sennilega er flestum sama - kæra sig nokkurn veginn kollótta. Telja sig ekki hafa neitt að fela. Á meðan er auðvelt að auka stöðugt eftirlitið. Kannski kærum við okkur heldur ekki um of mikið frelsi. Ég held samt að það sé einkenni siðmenntaðra samfélaga að láta þegna sína eins mikið í friði og hægt er.

Egill Helgason
pistill úr Ísland í dag
(ég vona að ég fái þetta samþykkt þó ég hafi gert þetta Copy/Paste á þessu)


Hvernig ég horfi á málið


Benjamin Franklin sem var einn af stofnendum Bandaríkjanna orðaði það sem Egill var að tala um svona:


,,Sérhvert samfélga sem gefur eftir smávegis frelsi til að öðlast smávegis öryggi á hvorugt skilið og mun tapa hvoru tveggja’’


Ég hef verið að velta þessu fyrir mér núna, hvort málfrelsi sé í raun á Íslandi. Vissulega segir ríkisstjórnin það, en svo er ekki. Dæmi um það er, að í opinberu tali má ekki tala jákvætt um reykingar og tóbak. Það er ekki málfrelsi. Þetta eru lög sem hafa komist á og virðist fyrir hinum venjulega borgara ekkert stórmál. En það er ekki raunin. Það er samt ekkert í lögunum sem banna fólki að tala vel um heróín. Samt er heróín bannað en tóbak leyft. Heldur má ekki tala illa um Íslam eða homma og lesbíur.


Um helgina fór ég á mynd sem heitir H fyrir hefnd eða V for vendetta og verð að segja að það er mjög athyglisverð mynd. Hún gerist í nákominni framtíð þar sem Bretland er orðið nokkurskonar fasistaríki, lögregluríki, og allt fyrir ”öryggi fólksins”. Fjölmiðlarnir ljúga að fólki og ”öðruvísi” fólk, t.d. múslimar og samkynhneigðir, eru látnir ”hverfa”. Fólk á erfitt með að ímynda sér sitt eigin þjóðfélag svona í dag, en staðreyndin er samt sú að til er njósnanet í Bandaríkjunum sem heitir Echelon UKUSA. Þetta fyrirbæri býr yfir tækni til að rekja upp hvaða símtal sem er og hvaða tölvupóst sem er. Sagt er að það rekji um 3 milljarða símtala, faxa og tölvupósta daglega. [heimildir um Echelon: wikipedia.org] Árásin í Írak var dæmi um svona blekkingaleik stjórnvalda til að valda ótta hjá almenningi en svo kom, auðvitað, í ljós að þessi ”ógn” sem stóð af Írökum var ekki til.


Mér finnst Bandaríkin vera á hraðleið í áttina að þessu sem myndin lýsir. Maður getur ekki talað í símann án þess að vera viss um að enginn sé að hlusta á það sem maður er að segja. Maður getur ekki gengið út í búð án þess að það sé eftirlit á þér. Kirkju- og dómsmálaráðherra Íslands, Björn Bjarnason, er mjög áfram um að efla völd og heimildir lögreglunnar til eftirlits með fólki úti í bæ. Margir hugsa sem svo að það verði bara eiturlyfjasalar og aðrir glæpamenn sem verða fyrir barðinu á þessu. En þegar svona kerfi eru komin í gang þá verður alltaf freistandi fyrir þá sem nota þau að fara skrefinu lengra, fyrst tæknin er til staðar. Þetta hefur einmitt gerst í Bandaríkjunum í kjölfar 11. september og Patriot Act laganna.


Ef við pössum okkur ekki, þá er ekki langt í að við endum á sama stað og Bretland í H fyrir hefnd.



án þess að nokkur taki eftir því