Þessi ómerkilegi lýður (öfgamúslimar, ég ber virðingu fyrir þessum venjulegu múslimum hins vegar, þeir taka yfirleitt ekki þátt í svona) var einmitt fyrir ekki svo löngu síðan að lýsa yfir stuðningi við Bin Laden í Danmörku og haldandi opinbera fundi á almannafæri um að “lýðræði og Islam” fer ekki saman og bla, bla, bla…(Slíkt fólk ætti eðlilega að senda úr landi, þar sem það hefur greinilega engan áhuga á að búa í lýðræðisríki, og mikil mistök að hafa þá innan þeirra þá.)
Þetta að brenna íslenska fánan var ÚTPÆLT að mínu mati. Þetta lið hugsar hlutina einmitt þannig, og maður hefur oft séð það…Þetta er ekkert sem gerist í hita leiksins, engin ástríðuglæpur af neinu tagi, þetta er yfirleitt pælt út hjá þeim (maður sér svipaða taktík hjá öfgasinnuðum Palestínumönnum, með fullri virðingu fyrir restinni).
Íslendingar eru ekki vinsælasta fólkið í Danmörku, og það er alveg einn og einn Dani sem myndi fá kick út úr þessu líka svo sem. Ekki að sem betur fer eru færri Danir þannig en þeir sem eru fordómafullir í Danmörku eru oft á móti Íslendingum, eða “afætunum” líka og líta svo á að við séum einhver aumingjalýður sem þeir haldi uppi.
Ef þeir hefðu brennt danskafánan, sem þeir þorðu ekki þessi chicken, (alveg eins og Palestínuterroristar sem eyðileggja fyrir öðrum Palestínumönnum friðarviðræður þora aldrei að ráðast á hermenn eða virðuleg mannvirki, og halda sig við börn, pizzastaði og svona…oft með útpældum, lúmskum leiðum,)… nú ef þessir menn, sem eru og verða alltaf blanda af algjörum chickenum og hugleysingjum og útsmognum PR mönnum sem hugsa um ímyndina, hefðu brennt danska fánan, þá hefðu þeir verið barðir í spað, og sumir kannski dáið, enda öfga þjóðernishyggja vaxandi í Danmörku, því miður (slíku fólki er einmitt oft samt sama um Íslendinga svo sem)…en því þorðu þeir ekki….
Þetta með að þeir hafi ekki getað reddað breska fánanum er fáránlegt? Hafið þið aldrei komið til Danmerkur eða? Hélt að flestir hefðu nú verið þar nokkrum sinnum amk á Íslandi…Það er ekkert mál að redda breska fánanum þar, og nú þá er bara að hnupla honum af næsta kaffihúsi eða bjóðast til að kaupa hann af því heldur, enda víða svona fánar hinna og þessara landa fyrir utan búðir og svona, hótel og ýmislegt. Ég hefði treyst mér til að redda breska fánanum þarna á nóinu, til þess þarf enga greind, og þessa menn skortir hana ekki alveg heldur, þó þeim skorti allt hugrekki og brenni því fána eins valdaminnsta og fámennasta lands heimsins, af ótta við Dani, sem ættu fremur “skilið” ef maður notar svo fáránlegt orð, að láta brenna sinn fána.
Svo er annað mál sem kannski færri vita, að þetta að kyrja “Allah er mikill” yfir brennandi fána, er nokkurs konar bölbæn eða vúdú, meðal öfgamanna af þessu tagi. Líkt og fólk sem stundar myrku gerðin af vúdu stingur pinnum í dúkkur til að óska einhverri manneskju ills og svona, þá eru þeir með þessu að reyna að kalla bölvun yfir Íslandi. En öfga múslimar biðja einmitt Vesturlöndum dauða dag og nótt sumir (sem er já bölbænir, skylt vúdú eða svartagaldri) og nú hefur Ísland væntanlega bæst á þann lista.
En við skulum nú ekki láta þessar galdrakellingar og huglausu aumingja sem þora ekki að brenna nema Íslenska fánan í Danmörku (sleppa þeim danska)sem eiga ekkert skylt við venjulega, góða múslima hræða okkur,…..en það er auðvitað ekkert hallærislegra en að AFSAKA þá og VERJA hér…
Hvers konar sjálfsvirðing er það?
Plús að það er vanvirðing fyrir eðlilegum múslimum, sem eru ólíkt heiðarlegri og minna útsmognir, og hugrakkari en þessir aumingjar óskandi okkur alls ills, en það er það sem þessi athöfn, fánabrenna, felur í sér….
(Og er henni líklega fylgt eftir með bölbænum heima af þeim öfgafyllstu, nú eða bara í moskvunni, slíkar öfgasinnaðar moskvur, sem virðulegir múslimar líta nú oft bara á sem guðlastara, starfa orðið víða um Norður og MiðEvrópu, aðallega í Þýskaland, en fyrirfinnast líka í Danmörku já.)
Ég veit það að ég mun ekki gleyma þessum fundi sem danskir öfgamúslimar höfðu til stuðnings Bin Laden þar sem þeir töluðu á móti lýðræði, í landinu sem gaf þeim annað tækifæri, og ég hef ekkert álit á dönskum múslimum af því tagi.
Það er fáfræði að hata aðra menningarheima út í loftið, en það er alveg jafn alvarleg fáfræði að halda að allir meina betur en þeir gera. Múslimi og öfgamúslimi er ekki það sama, ekki frekar en kristinn maður eða maður í KKK eða rannsóknarréttinum.
Ef við munum einhvern tíman fara okkur að voða hér á Vesturlöndum fyrir fullt og allt verður það afþví fólkið er að verða fáfróð fífl, í stað þess að nota tækifærin sem hnattvæðingin og fjölmenningin býður upp á að geta séð heiminn og aðra menningarheima og sinn eigin í raunhæfu ljósi, það góða OG það slæma.
Bjóða hinn vangan er voða falleg saga já, en þú býður ekki glefandi ljóni hinn vangan úti á sléttunni, hvað þá að þú reynir bara að afsaka það meðan það étur þig. Þú losar þig við það, eða deyrð.
Tek það fram að sumar af mínum fyrirmyndum, og þeirra sem ég lít upp til, ERU múslimar, og ég hef margt gott um Islam að segja, bara ekki öfgamennina.