GunniS
ég og þú erum furðulega lík, lesum ekki allt sem manneskja er búin að skrifa áður en við snúum útúr skoðunum hennar. Ég sagði annarsstaðar að það ætti að vera svipuð refsing fyrir nauðgun og mjög grófa líkamsárás, mér finnst 6-10 ár við hæfi.
Ég tjáði mig líka um þessa líkamsárásapakka í einu af fyrstu svörunum við þessari grein, þar lýsti ég mikilli hneykslun með þetta og ég skammast mín virkilega fyrir dómskerfið hérna, lít á það sem brandara vegna þess að mér finnst einmitt að ofbeldisglæpamenn eigi að vera teknir úr umferð í dáldinn tíma ef þeir ráðast að annarri manneskju og ógna henni, því meiri ógn og ofbeldi því meiri fangavist til að vernda okkur hin. Allveg sama hvort um karlmann eða konu er að ræða.
Ég er í átaki með sjálfa mig að reyna að sýna kurteisi og missa ekki stjórn á skapi mínu, ég hefði annars orðið úber fúl yfir því hvernig þú misskilur mig og snýrð útúr orðum mínum en auðvitað segir það sig sjálft að það vilja allir frekar nefbrotna og jafnvel kjálkabrotna líka fá heilahristing og vera marinn allstaðar heldur en láta nauðga sér, ég bað þig og aðra sem halda að þetta sé ekki svo að reyna að ímynda ykkur hvernig er að vera nauðgað, prufið, það er virkilega hroðalegt og þá skiljiði þetta betur.
Þetta rugl þitt um að konur beiti sveinbörn meira ofbeldi en stúlkubörn er nú dáldið asnalegt, hvað á ég þá að segja, karlmenn riðlast frekar á stúlkubörnum en sveinbörnum? Það er nokkuð stór hópur karlmanna hér á landi sem leggur sig til við að berja eiginkonur sínar og börn og annars enn stærri hópur sem misnotar börn, mér dettur ekki til hugar að dæma alla karlmenn eftir þessu en það breytir því ekki, sorglegt en satt að konur verða alltaf að vera á verði og ég hef orðið vör við það hjá vinkonum mínum sem eiga börn að þær eru svo hræddar um að einhver skaði börnin þeirra því það veit enginn hvað býr innifyrir hjá fólki (karlmönnum í þessum tilfellum).
Það að konur beiti börn ofbeldi er tiltölulega sjaldgæft, ég get ekki sagt hvort það er nokkuð tilí þessu hjá þér með ofangreint, stelpu strákamál en mér finnst það hæpið og hálf miklir fordómar og áróður gegn konum. Leiðréttu mig ef svo er og útskýrðu.
Kveðja
vortex
ég horfi oft á þætti eins og CSI, og í einum af þessum þáttum kom fram einmitt þessi setning um að konur eiga til að beita sveinbörn ofbeldi t.d ef móðirinn er að skilja við föðurinn, og annað að ég var á námskeiði einu sinni sem hét sálfræði daglegs lífs, þar var gerð tilraun, hún gekk út á að taka ungabörn sem eru á þeim aldri sem er erfit að greina kyn. og stúlkur klæddar í blátt og drengir klæddir í bleik.
svo komu ættingjar inn. t.d frænkur og frændar. og í þessari tilraun var áberandi hvað börn klædd í blá föt fengu harkalegri meðferð. eins og að flegja þeim upp í loftið og grípa, og börnin urðu skít hrædd, en á meðan voru börn sem voru klædd í bleik föt þau fengu knús og faðmlag.
svona skýrði þessi sálfræðingur mun á þeim heimi sem kynin lifa í. og plús það að ég miða þessa fullyrðingu mína um að mæður beita sveinbörn meira ofbeldi miðuð út frá persónulegri reynslu. og út frá þessu þá sýnist mér að konur vorkenni körlum ekkert ef þeir eru barðir, því það tilheyrir þeirra veruleika að lenda í barsmíðum og illri meðferð.
þannig að fullyrðing um að líkamsárás sé ekki eins slæm og nauðgun er einfaldega undirstrikun á því kynjamisrétti sem karlar meiga þola, og konum er nákvæmlega sama þótt karlar meigi þola kynjamisrétt.
hvað varðar að þú ferð að tala um misnotkun á börnum. þá er ég alveg viss um að konur myndu misnota unga stráka ef það væri líffræðilega mögulegt. þú þarft ekki annað en að horfa á myndir eins og american pie. þar sem einn strákurinn en kynferðislega hrifin af mömmu vinar síns. og fólki finnst þetta bara allt í lagi. hugleiddu þetta, afhverju finnst fólki í lagi að það sé í bíómynd að sofa hjá mömmu vinar síns.
væri í lagi fyrir unglingstelpu að sofa hjá pabba vinar síns. eða yrði hann þá kærður fyrir að kynferðislega misnota unglingstúlku.
0
american pie = american beauty - skilurðu eða hefurðu ekki séð seinni myndina?
Það er hræðilegt að halda því fram að fólk beiti sveinbörn harkalegri meðferð þannig að börnin þjáist og fólkinu sé allveg sama, ég held að það sé einhver svona nýútsprungin sálfræðikenning sem hakkarar vinna eftir. Ég hef samt heyrt um svona tilraunir og kannski er eitthvað til í þessu, ég lærði líka í sálfræði að það var gerð tilraun þarsem myndavélum var komið fyrir á fæðingardeildinni til að kanna hvort foreldrið væri ástríkara, þá voru karlmennirnir víst mun ástríkari en mömmurnar (sem voru samt ekkert vondar fyrir því), en þeir þurftu að vera í einrúmi til að það kæmi fram.
Konur hafa flestar engan áhuga á klámi og eru allt öðruvísi líffræðilega uppbyggðar þegar kemur að kynlífi, þær myndu ekki misnota börn ef þær gætu það, það er 1-2% allrar kynferðismisnotkunar framin af konum og þær fremja hana jafnt gegn strákum og stelpum. Þessar konur eru oftast geðveikar á einhvern hátt, ekki einsog karlarnir sem leynast í skuggunum.
og að lokum, konum er ekki sama þótt karlmenn séu beittir ofbeldi (breytir því ekki að nauðgun á körlum og konum er mun hræðilegri glæpur en flest ofbeldi), mér finnst hræðilegt að heyra um það þegar fólk lendir í að vera barið eða lamið íi kássu á djamminu. Þekki reyndar mjög margar stepur sem hafa lamið eða verið lamdar á djamminu, jafnréttið er að vinna á á þessum vettvangi líka.
0