Golata. Rosalegur mannþekkjari ert þú eða hitt ó heldur. Sýnist þú hafa álíka ranghugmyndir um mig og Gyðingana, hefurðu ekki bara ranghugmyndir um allt lífið yfir höfuð og lifir í ímynduðum heimi og heldur að þú vitir allt, hvort sem það er um heilu þjóðirnar sem þú hefur aldrei komið til eða manneskju sem þú hefur skrifast á við í tvær sekúndur eða svo.
Skoðum aðeins kenningar þínar um mig, svona sem dæmi til að sýna þér hve fordómafullur þú ert yfirhöfuð
“Mikið leggurðu þú á þig að svara þessu.” Ég legg EKKERT á mig, þess vegna geri ég svona mörg mistök, ég skrifa þetta bara í belg og biðu, eftir minni, án umhugsunar, og án minnstu áreynslu, áreynslan felst eingöngu í að umbera þína líka einstaka sinnum.
“Ertu kannski einn af þessum vitleysingum á Ómega
stöðinni sem dásama allt sem kemur frá Ísrael.”
Ég er að vísu trúuð en á minn eigin hátt, sem kemur trúarbrögðum þannig séð lítið við. Ég hef áhuga á trúarbrögðum rétt eins og ýmsum öðrum þáttum í menningu fólks, kannski meiri en sumum öðrum, en ég aðhyllist þannig séð ekki beint neina trú, og hef ekki farið í kirkju eða neitt slíkt hús af neinu trúarbragði í mörg ár, þó ég hafi nú ekki lifað í sérlega mörg ár. Er annars ekki alin upp við neitt slíkt. Mörgum mislíkar það greinilega að ég trúi frekar minni eigin reynslu heldur en bókum, og svona fólk í svona kirkjum eins og á Omega heldur eflaust að ég sé að fara til fjandans eins og allir aðrir. Ekki að ég hef ekki oft talað við það og þekki ekki marga þannig.
Ég dásama alls ekkert allt sem frá Ísrael kemur, ég ver þá bara fyrir ósanngjörnum árásum afþví að þeir eiga rétt á að vera til eins og annað fólk og ég ber virðingu fyrir þessari þjóð, þó það sé reyndar á talsvert öðrum forsendum en fólkið á Omega já. Annars mislíkar mér að vissu leyti hvernig þeir stilla hlutunum upp á Omega, þó það hafi skánað sýnist mér, nenni ekki að fara út í það, enda kannski ekki besta manneskjan til að tala um það, horfi lítið á þetta, og er ekki svona kirkju eða safnaðamanneskja eða hvað þetta heitir og trúi ekki á helvíti, djöfulinn og allt þetta neikvæða dæmi sem þeir eru að tala um, nema í óeiginlegri mynd þá, svona sem hið illa í manninum , alvarlegan misskilning, eða what ever.
“Hættu í þessu trúarrugli” Hvaða trúarrugl? Nú hef ég að vísu lesið talsvert um önnur trúarbrögð yfirhöfuð, þú veist veda bækurnar Kóraninn og svona dót, og hef einhvern áhuga á svoleiðis eins og fjölmörgu öðru, það kallast nú bara fróðleiksfýsn, lestur, forvitni og svona, en ekki “rugl”, nema þú sérst týpan sem kallar allt nema að horfa á bolltan rugl, og finnist kannski jafnvel fólk sem les blöðin hálf ruglað? Svona er fólk ólíkt. Ég hef ekki farið í neitt tilbeiðslu hús í mörg ár, stunda engin skipulögð trúarbrögð, og hef mjög einfalda trú? Hvaða rugl sérðu í þessu segirðu? Sagði ég að geimverurnar væru að koma á morgun? *Hlátur* Ég er ekkert í meira trúarrugli á nokkurn hátt en næsti maður.
“og farðu aftur í dópið og ræsið þar sem þú átt heima.” Ég hef aldrei neitt dóps. Ég hef reykt eina sígarettu og síðan ekki söguna meir þegar ég var í gaggó. Ég hef ekki einu sinni reykt hass. Tek helst ekki höfuðverkjatöflur nema ég sé alveg að farast. Ég drekk bjór, en drekk mig ekki blindfulla nema á þriggja ára fresti eða svo. Bara svona einn til tvo bjóra við og við með félögunum. Og er ég þá orðinn róni og dópisti?
Ég hef svo aldrei verið í neinu ræsi og mun aldrei vera.Mitt líf er meira en gott og framtíð mín mjög, mjög björt.
Svona mikið veistu nú um mig! Ég manneskja sem reyki ekki einu sinni er að þínu mati dópisti, manneskja sem hef ekki farið í kirkju í mörg ár hluti af starfsliði Omega, og manneskja sem hefur mjög fínt líf ræsisbúi? Ég skil….En snúum okkur nú að næsta sviði alvisku þinnar: Ísrael
“Ísraelar flytja ekki inn flóttamenn kjáni, þeir flytja inn ódýrt vinnuafl til að fylla í skörðin fyrir Palestínsku farand-verkamennina.” Já, er það já? Þess vegna fluttu þeir inn þotufarma af Eþíópíu Gyðingum sem þeir hafa svo oft orðið að halda uppi í lengri, lengri tíma afþví aðlögun gengur illa, atvinnuleysi og slíkt? En hagkvæmt!
“Og þeir eru stórtækastir af öllum í að narra konur frá austurevrópu í vændi og kynlífsþrælkun til Ísraels.” Það er ALÞJÓÐLEGT VANDAMÁL , og er verst í Þýskalandi hjá dauðu hetjunum þínum, kíktu bara á skýrslur um þetta. Þetta er líka til í Ísrael já, afþví þar er vont fólk í bland eins og annars staðar, og eitt af vandamálum Ísraels er hversu vægt er tekið á ólöglegu flóttafólki og hversu auðvelt er að komast inn í landið, og því gengur svona undirmálsstarfsemi kannski betur en ef þeir tækju harðar á málum. Annars er þetta vandamál svo víðtækt að það hefur jafnvel spurst út að slík sala á Austur Evrópskum konum eigi sér stað hér á landi, eins og þú ættir að vita, nema þú sérst úr sveit, nú eða hafir aldrei komið í Vesturbæinn. Ég býst því miður við að þetta sé satt um vændið hér á landi og þessar veslings konur.
“Þú getur ekki nefnt einn gyðing í stjórn Bandaríkjanna, ég skal hjálpa þér. Rumsfeldt, Ari Fleitcher. ” Veit satt að segja ekkert um Bandaríksu ríkisstjórnina en þýskt nafn gerir mann ekki að Gyðingi. Hvar fannstu þetta? Nefnu mér einhverja heimild sem er ekki nýnasista eða öfga múslima síða, nú eða rasista síða yfirhöfuð. Ég skal athuga þetta, það getur vel verið að ég hafi misskilið þessa grein sem ég las, enda kom hún mér satt að segja á óvart. Ég var syfjuð þegar ég las hana, get reynt að finna hana aftur, eða spurt einhvern.
Þangað til lifðu bara áfram í þínum svart-hvíta einfaldaða og leiðinlega heimi, og halltu áfram að hata, og hatrið kemur aftur til þín. Þannig virkar það bara, og það kemur alls ekkert endilega frá þeim sem þú hatar, nema síður sé, þannig virkar það ekki. Fólki sem er fullt af hatri sama út í hvern gengur eiginlega aldrei vel. Því get ég lofað þér. Undantekningarnar sem sanna regluna eru til, en allt þeirra lán er fyrr eða síðar dýru verði keypt. Hef bara séð þetta með að horfa í kringum mig…Er fegin að ég hata engan.