Varúð: Þegar ég rýni óútgefna tónlist þá fókusa ég á veiku punktana. Ég geri það svo að þú græðir eitthvað á rýninni og sjáir hvað má bæta.
- Þetta er geðveikt miðað við að þú ert 16 ára, en lögin eru ennþá of bragðlaus og klisjukennd.
- Skil ekki alveg hvað er að gerast fyrstu 20 sekúndurnar af Medina remixinu, hljómar dáldið out of sync.
- The One er dáldið vel heppnað, en laglínan ætti kannski ekki að vera sömu nóturnar spilaðar eins í gegnum allt lagið. Sorry ef ég hljóma neikvæður. Þú ert 80 prósent kominn með þetta en ég hef trú á að þú getir gert betur.
En sjitt hvað það verður drullað yfir mig ef ég hunskast einhverntíman til að semja lög :)