Já ég á svona græju. Hefur nýst mér rosalega vel, ég er að nota traktor pro + kaoss pad. Á tímabili var ég líka með cdj spilara og plötuspilara tengda við þetta.
Þetta er snilld ef þú ert að nota Traktor, en ef þú ert að spá í Ableton Live þá myndi ég bara fá mér controller, t.d. apc40.
Annar möguleiki ef þú átt nú þegar Traktor og mixer er að kaupa X1 controllerinn frá Native Instruments.
Eina vandamálið sem ég hef lent í er að ef þú ætlar að nota hann með Windows, þá þarf það að vera 32 bita Windows, ekki 64.