Væri ágæt að fá meiri upplýsingar um hvað þú vilt gera.
Ég geri samt ráð fyrir að þú sért ekki að fara taka eitthvað upp, heldur sért að vinna meira innan Abelton. Þá þarftu bara eitthvað lítið 2in/2out kort.
Ég á
M-audio FireWire Solo(linkur) og hefur það reynst mér vel. Getur líka kíkt á FastTrack USB kortin frá M-audio.
Echo Audio Audiofire(linkur) eru lítil og nett firewire hljóðkort.
Þetta eru kort sem ég hef reynslu af og hef verið sáttur við.
Auðvitað er til fullt af hljóðkortum, mæli með að þú kíkjir í hljóðfærabúðirnar og kíkjir á hvað þetta kosta núna nýtt.
Gætir ábyggilega fengið eitthvað notað á góðum prís hérna á huga.