þetta er bara tvöfalt setup.. þ.e. tveir spilarar og mixer á mann.. við erum báðir með serato og ég er líka með diskana mína með ef ég dett í eitthvað eldra.
minn mixer er tengdur yfir í hans þannig að hann getur ruglað í hljóðinu sem kemur frá mér en ég er bara með mitt..
við erum ekkert að midi synca neitt.. bara tveir graðir að rugla eitthvað, held að ég sé meira að spila og rikki að loopa og fikta.. en það er líka öfugt.
við höfðum ekki mikinn tíma til að skipuleggja.. fórum bara snemma uppí útvarp og náðum aðeins að fara yfir lög o.s.frv.. en það er ekkert ólíklegt að við reynum að gera eitthvað meira úr þessu..
svo fer tracklisti að detta inn, erum að fara yfir upptökuna og finna hvað við vorum að spila :)