já það er rétt krakkar mínir.. FEX ætlar að koma hingað og spila fyrir okkur sálarfulla tekknó-, hús- og aðra dansmúsík á hinum glimrandi skemmtiklúbbi Organ..
Ykkur að segja var Fex leiður og hvekktur þegar hann sat á bekk á CDG flugvelli Parísarmanna og beið og beið og vonaðist eftir góðum flugfregnum frá Íslandi..
en allt kom fyrir ekki, í fyrsta skipti í háa herrans tíð bárust fregnir af því að allt flug lægi niðri vegna mestu óveðra í seinni tíð á klakanum.
því geta dansmenn Íslands tekið upp hressleik sinn að nýju, og hafið dansinn til vegs og virðingar. Gott er að taka dansæfingu um næstu helgi með Marc Romboy á Nasa (laugardag), þá er með öllu líklegt að allir dansi í takt, þar sem þeir Romboy og Dj FEX munu taka dansæfingu á föstudaginn á Mix Club í París.
Dömur mínar og herrar, dansmenn og aðrir menn.. Dj FEX á Organ 8. feb
dans er lífið.
BARCODE