Þá er komið að því. Eitt stærsta kvöld sem The Royal Entertainment Group ætlar að halda á þessu ári. Í þetta skiptið beinum við sjónum okkar að einni stærstu dansveislu í Evrópu en það er Sensation hátíðin í Amsterdam. Sú hátíð fer ávallt fram fyrstu tvær helgarnar í júlí og við ætlum að vera samstíga og halda Sensation Akureyri þann 14. júlí næstkomandi eða aðra helgina í júlí.
Þetta verður “Black Edition” sem þýðir það að allir þeir sem ætla að mæta á kvöldið verða að vera klæddir í svart frá toppi til táar annars komast þeir ekki inn.
Hérna eru nokkrir punktar sem gott er að muna ef þú ætlar að mæta:
Þú verður að mæta í svörtu…frá toppi til táar
Þetta er dansveisla sem þýðir danstónlist frá A til Ö
Einn heppinn dansóður gestur vinnur ferð til Amsterdam með Icelandair á kvöldinu!
Ef þú ert hrædd/ur við sprengingar og líður illa í hávaða - ekki mæta
Ef þér er illa við stöðugt “flass” og ljós - ekki mæta
Ef þú vilt prufa eitthvað nýtt og ferskt sem þú hefur ekki séð á Íslandi áður - mættu
Meira info um kvöldið verður sett inn síðar á vefsíðuna www.treg.is