Jæja alveg síðan ég var ungur piltur hefur mig alltaf dreymt um að verða DJ, en einhverra hluta vegna gat ég aldrei almennilega nálgast það og það bara svona datt útfyrir í forgangsröðun. En núna stefni ég á að láta allavega reyna á þetta.

Ég hef ekki snert svona græjur, hef ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera ef ég stæði fyrir framan svona græjur, en mig langar alveg ótrúlega að læra það!

Ég þá bara aðallega spyr, hvað er best í að prufa að fikta sig áfram, án þess að vera að spreða peningum í fínt dót sem ég kannski næ svo kannski aldrei taktíkinni.

Já og aðal spurningin er, hvað þarf venjulegur DJ? Segjum sem svo, þú ert að fara að spila, hvað þarf maður?

Ég veit þetta er svona nett hallærislegur póstur, en ég vona að það væri e-r til í að vera svo vænn að koma með nokkra punkta fyrir mig :)