hér er copy/paste af þessari fréttatilkynningu:)
FRÉTTATILKYNNING:
————————-
Thomas Bangalter og Guy-Manuel de Homem-Christo verða gestir Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Saman skipa þeir dúettinn Daft Punk. Thomas Bangalter mun troða upp sem plötusnúður á NASA laugardagksvöldið 7. október ásamt DJ Jack Schidt aka Margeir og DJ Lazer. Bangalter hefur ekki komið fram sem plötusnúður í tæpan áratug og því ljóst að um stórviðburð er að ræða. Miðasala er hafin á midi.is og filmfest.is. Miðaverð er einstaklega hagstætt, aðeins 1.000 krónur í forsölu, 1.500 krónur við hurð. Athugið að magn miða í forsölu er takmarkað.
Franska hljómsveitin Daft Punk hefur verið ein vinsælasta danshljómsveit í heimi um nokkurra ára skeið. Hér nægir að nefna smelli á borð við “Around the World”, “Da Funk”, “One More Time”, “Harder, Better, Faster, Stronger”, “Digital Love”, “Technologic”, og “Robot Rock”. Myndbönd þeirra hafa líka vakið mikla athygli, en leikstjórar á borð við Spike Jonze og Michel Gondry hafa gert myndbönd við lög þeirra. Þá mynduðu myndböndin af plötunni Discovery (2001) samfellda teiknimynd í anime-stíl. Thomas Bangalter hefur einnig gert tónlist einn síns liðs, og lagið ..Music Sounds Better With You.. undir nafninu Stardust er líklega þekktast þeirra.
Meðlimir sveitarinnar, þeir Thomas Bangalter og Guy-Manuel de Homem-Christo, hafa nú gert mynd sem nefnist Electroma. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí við góðar undirtektir. Hún verður sýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík sem stendur yfir 28. september til 8. október. Thomas og Guy-Manuel verða viðstaddir sýningu myndarinnar hér á landi 6. október og svara spurningum áhorfenda.
Electroma er nokkurskonar vegamynd og segir sögu tveggja vélmenna sem vilja verða mennsk. Myndin var tekin upp í Kaliforníu og inniheldur m.a. tónlist eftir Todd Rundgren, Brian Eno, Curtis Mayfield og Sebastian Tellier.