Ef einhver getur hjálpað mér þá væri það mjög vel þegið.
Þannig er mál með vexti að ég er að spila í 7 kafla í BGII og er með Aerie í liðinu mínu. Allt gott um það að segja nema að þegar í 6. kafla ég fór að berjast við Bhodi þá tók hún Aerie frá mér og breytti henni í vampíru. Þannig að ég varð að drepa Aerie og taka líkið hennar. Ef að ég les lýsinguna segir að Elven War Sage geti kannski hjálpað mér þannig að þegar ég fór í álfabæinn í 7. kafla athugaði ég alltaf hvort hægt væri að lífga hana við. Ég gat bara nefnt þetta við eina persónu sem heitir Demin. Hún segir að ég eigi ekki að pæla í þessu í augnablikinu heldur fyrst redda bænum. Þannig að ég geri nákvæmlega það sem hún biður mig um og tala aftur við hana en þá fæ ég enga möguleika tengda þessu þannig að ég klára leikinn með Aerie í inventory-inu mínu og byrja þannig í Throne of Bhaal. Á ég að lífga hana við þar eða missti ég af einhverju?
Svo er líka annað. Á sama stað þ.e. í álfaborginni Suldanesslar birtist einhverskonar guð þegar ég set hlutina í altarið og eftir að hann fer kemur álfaprestur og býður mér vörurnar sínar og segir að sumir af hermönnunum bjóði einnig eitthvað til sölu en hvar eru þeir???
Takk kærlega fyrir alla hjálp.<br><br>Such is life, full of surprises