Sko, þannig er mál með vexti að ég ákvað einn góðan veðurdag að byrja á byrjun (einu sinni enn) og ákvað í þetta sinn að vera dvergastríðskappi. Ég fann bækur hér og þar, sem gerðu mér kleift að hækka tölurnar mínar um einn, og þar sem að ég var þegar með eins hátt con og dvergur getur haft (19) þá hækkaði það um einn, og varð tuttugu (sem þýðir “regeneration”!), og þar sem ég var með 18/92 í str þá hækkaði það upp í 19.
Nú. Ég gerði það að gamni mínu (áður en að ég hafði klárað 1) að flytja hann yfir í 2. Viti menn, hann missti þessar ágætu tölur (sem kostuðu mig þónokkra fyrirhöfn, auk þess sem þett voru tölur sem er ekki hægt að kasta upp á). Nú er ég dálítið svekktur (þótt ég viti svosem að tölur eru ekki allt), og spyr því hvort einhver ykkar hafi lent í svipuðum vandræðum.<br><br>Þorsteinn.