Fyrir mig sem hef verið að spila nwn1 á netinu í nokkur ár, þá er nwn2 alveg hörmuleg netspilun með fullt af böggum og er of hægur og rennur ekki eins léttilega og nwn1. Síðan fara þeir að gefa út eitthvað expansion með fullt af nýjum prestige classes og einhverju sem bætir ekkert samanborið við vandamálið sem er til staðar.
Aftur á móti fannst mér single player spilunin á nwn2 alveg fín og útlitið gott, fyrir utan andlitin sem hægt er að velja fyrir characterana =P. Ég held mig samt við þann gamla góða og læt ekki gránandi grafík hafa áhrif á mig. Það er ekkert samanborið við það snilldar RP sem þar er hægt að finna, síðan eru þeir ennþá að patcha nwn1. Það á að bæta við urmul af nýju dóti sem núna er verið að losa við bugs áður en sett er fram. Verður hægt að vera á hestum og eitthvað veit ég…