Finnst engum nema mér undarlegt, að Mazzy skuli passa í plate mailið sem Minsc var í rétt áðan, eða þá að halfling skuli yfirhöfuð getað sveiflað tveggjahandasverði? Og hversu fáránlegur væri sá dvergur sem notaði large shield? Ég meina, skjöldurinn er örugglega tvöföld hæð hans!

Af hverju reiðast vondir NPC þegar reputation fer upp í 18 eða 19? Þeir ættu að njóta þess frekar en nokkur annar! Allir halda að þeir séu einhverjir goody two-shoes þegar þeir eru bara kúkalabbar og skepnur - sem fá þar að auki góðan afslátt í öllum búðum.

Hvernig stendur á því að dvergur og hálf-álfur eða álfur skuli standa í rómantísku sambandi? Hvað þá kvenkyns hobbi og karlkyns maður?