Já og nei. Málið er að ég hef ekki haft mikinn tíma upp á síðkastið og einnig hefur WoW tekið frá mér óhemjumikinn tíma.
Ég ætla a.m.k. að reyna að koma með galdrana aftur. Einnig hafði ég hugsað mér að koma greinar um aðferðir við að vinna hina og þessa óvini úr RPG leikjum (líklega þá úr BG1/2) og einhverja skemmtilega hluti. En til þess þyrfti ég helst að byrja aftur á þeim leikjum og það gæti tekið smá tíma. Allavegana, ég ætla að koma með eitt stykki galdur bráðlega og síðar kannski einhverja taktík.