Millifærsla frá BG til BGII:TsA.
OK, þetta er málið: ég er búinn að spila BG nokkuð stíft undanfarið(og þarf raunar að taka smá kaffi). PCinn minn (sem heitir þð sama og ég, þótt það kunni að koma á óvart) hefur m.a. fundið bækur sem hækka styrk hans, þol og gáfur. Allt um það, ég er ekki alveg búinn að klára en mig langaði til að prófa að færa hann yfir, athuga hvort stigin haldist (ég leik álf, sem náði 18 í Con eftir að hafa fundið eina svoleiðis bók). Og jú, jú, þau gerðu það, en viti menn! - Hp-mín lækkuðu dramatískt! Þegar ég flutti mig yfir var persónan með 52 Hp, en þeir duttu niður í fjörutíuogeitthvað - og auðvitað er ég að tala um max. hit points. Ég hækkaði um level, enda ekki búinn að klára BG, en missti Hp. Kann einhver skýringu á þessu?